Björgunarskipið Sigurvin - Viðlegupláss 2026

Málsnúmer 2605007

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 10. fundur - 07.05.2026

Á fundinn eru mættir fulltrúar björgunarskipsins Sigurvins, Ingvar Erlingsson, Örvar Tómasson og Magnús Magnússon. Ræddar voru hugmyndir um framtíðar legupláss fyrir Sigurvin í innri höfninni og þá við flotbryggju sem er mikilvægt fyrir starfsemina.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Aðilar eru sammála um að finna verði Sigurvin framtíðar legupláss við innri höfnina þar sem ekki er hætta á að aðrir bátar leggist upp að. Fram kom sú hugmynd að leggja flotbryggjukant við vesturkant innri hafnarinnar þar sem Sigurvin gæti legið við og það væri þá öruggt viðlegupláss fyrir skipið til lengri tíma sbr. gróf afstöðumynd sem liggur fyrir. Með þessu móti myndi jafnframt skapast meira pláss til þess að setja upp fleiri "fingur" á núverandi flotbryggju og þar með betri nýtingu. Hafnarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að kanna möguleika á þessari lausn og þá leggja fram áætlaðan kostnað við uppsetningu á flotbryggju við vesturkantinn sem einungis björgunarskipið Sigurvin hefði aðgang að.