Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Málsnúmer 2605032

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 920. fundur - 05.06.2026

Fyrir liggur erindi frá Innviðaráðuneyti þar sem fram kemur að hafin sé heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu og í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga um áhrif veiðiheimilda byggðakvóta á þau og einstök byggðarlög. Frestur hefur verið gefinn til 15. júní að skila inn umsögn.
Samþykkt
Bæjarstjóra og kjörnum fulltrúum falið að taka samtal við hagsmunaaðila og umsögn sveitarfélagsins unnin í samráði við þá.