Framtíðaruppbygging á mótorkrossbraut í Ólafsfirði

Málsnúmer 2605033

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 919. fundur - 20.05.2026

Fyrir liggur erindi frá Vélsleðafélagi Ólafsfjarðar þar sem kynntar eru metnaðarfullar hugmyndir um heildaruppbyggingu mótorkrosssvæðis félagsins við Ósinn í Ólafsfirði. Forsendur frekari uppbyggingar felast í fjárhagslegum stuðningi sveitarfélagsins eins og fram kemur í erindinu.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð þakkar Vélsleðafélaginu erindið og vísar því til umræðu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.