Bæjarráð Fjallabyggðar

907. fundur 05. febrúar 2026 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Þjóðvegur í þéttbýli Ólafsfjörður Áfangi 3

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsinga um kostnaðaráætlun og verklýsingu á áfanga 3 við þjóðveg í þéttbýli í Ólafsfirði.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að veita heimild fyrir lokuðu útboði á áfanga III á göngu- og hjólastíg meðfram þjóðvegi í þéttbýli í Ólafsfirði þegar samningur um kostnaðarskiptingu við Vegagerð liggur fyrir.

2.Endurbætur á sundlaug Siglufjarðar

Málsnúmer 2502037Vakta málsnúmer

Tilboð í endurbætur á tæknirými, þ.e. sundlaugarlögnum, raflögnum og fleiru, voru opnuð fimmtudaginn 29.janúar og barst eitt tilboð í verkið frá Finni Inga Sölvasyni að upphæð kr. 81.695.344 en kostnaðaráætlun verksins er kr. 79.061.813. Tilboðið er því um 3% yfir kostnaðaráætlun.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Finns Inga Sölvasonar að upphæð kr. 81.695.344 og felur framkvæmdasviði að ganga frá verksamningi um verkið. Verkið rúmast innan fjárfestingaáætlunar.

3.Ferðaklasi Fjallabyggðar

Málsnúmer 2511002Vakta málsnúmer

Fyrir liggja uppfærð samningsdrög við Ferðaklasa Fjallabyggðar ásamt drögum að samþykktum félagsins sem áætlað er að stofna fyrir lok febrúar 2026. Jafnframt liggur fyrir álit lögmanns Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Ferðaklasa Fjallabyggðar að gefnum þeim skilyrðum er fram koma í drögum að samþykktum félagsins.

4.Launayfirlit tímabils - 2026

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Með fundarboði bæjarráðs fylgdi yfirlit launakostnaðar fyrir janúar 2026. Áfallinn launakostnaður er 96,2% af tímabilsáætlun.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Tillaga til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri

Málsnúmer 2311009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Atlantsflugi ehf þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram kemur að landsþing sambandsins verður haldið dagana 23.-25.september n.k. og fer fram á Akureyri. Fjallabyggð á rétt á tveimur fulltrúum á landsþingið í samræmi við samþykktir sambandsins auk þess sem bæjarstjóri hefur rétt til setu á landsþinginu.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal vegna fundar skipulags - og framkvæmdasviðs í febrúar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:00.