Bæjarráð Fjallabyggðar

906. fundur 02. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Málefni Leyningsáss ses

Málsnúmer 2402023Vakta málsnúmer

Fyrir liggur staðfesting frá Fyrirtækjaskrá Skattsins á slitum á félaginu Leyningsás ses en félagið var afskráð þann 21.janúar s.l. að undangengnu hefðbundnu slitaferli.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Þar sem slitum á félaginu er nú lokið felur bæjarráð bæjarstjóra að uppfæra eignalista Fjallabyggðar í samráði við endurskoðendur og gera tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 í samræmi við þá eignabreytingu.

2.Ferðaklasi Fjallabyggðar

Málsnúmer 2511002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að samstarfssamningi við óstofnað félag um Ferðaklasa Fjallabyggðar sem hefði það hlutverk að efla samstarf og samhæfingu ferðaþjónustuaðila og annarra hagsmunaaðila í Fjallabyggð með það að markmiði að kynna svæðið sem fjölbreyttan, áhugaverðan og spennandi áfangastað ferðamanna allt árið.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita álits lögmanns Fjallabyggðar á fyrirliggjandi drögum um þátttöku sveitarfélagsins í Ferðaklasa Fjallabyggðar.

3.Snjókross keppni í Ólafsfirði 2026

Málsnúmer 2601070Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Vélsleðafélagið Ólafsfjarðar þar sem óskað er eftir leyfi til að halda snjókross keppni helgina 10.-12.apríl n.k. innanbæjar í Ólafsfirði.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti en leggur áherslu á að Vélsleðafélagið skili svæðinu, eins og kostur er, í sama ástandi og það var ef til snjóflutninga kemur.

4.Loftslagsstefna Norðurlands eystra

Málsnúmer 2507007Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá SSNE þar sem kynnt eru drög að Loftlagsstefnu Norðurlands eystra. Óskað er eftir að athugasemdir og ábendingar berist SSNE í síðasta lagi þann 4.mars n.k. en stefnt er að því að loftlagsstefnan verði staðfest á ársþingi SSNE 26.mars n.k.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum í samræmi við umræður á fundinum er helst snúa að kostnaðarmati aðgerða sem lagðar eru til í drögum að loftlagsstefnu Norðurlands eystra.

5.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2026

Málsnúmer 2601003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá nefnda - og greinarsviði alþingis þar sem send er til umsagnar "Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9.febrúar n.k.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri umsögn Fjallabyggðar í samræmi við fyrri bókanir og áherslur bæjarráðs og bæjarstjórnar Fjallabyggðar.

6.Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga

Málsnúmer 2601067Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Markmið frumvarpsins er að bregðast við ákalli um heildarendurskoðun laga um vitamál nr. 132/1999. Núgildandi lög um vitamál eru talin komin til ára sinna og innihalda ákvæði sem þarfnast uppfærslu.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl vegna stöðufunda hjá framkvæmdasviði í janúar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð af fundi Ungmennaráðs Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.