Bæjarráð Fjallabyggðar

874. fundur 09. maí 2025 kl. 08:15 - 09:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson varafulltrúi
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varafulltrúi
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Samstarf um flutning á textíl.

Málsnúmer 2505004Vakta málsnúmer

Fyrir liggja samningsdrög við Akureyrarbæ annars vegar og Rauða Krossinn hins vegar um meðhöndlun og flutning á textíl en sveitarfélögum er skylt að halda úti sérstakri söfnun á textíl. Hlutverk Rauða Krossins er að flokka og endurnýta sem mest af textíl en Akureyrarbær sér um flutning frá Akureyri.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningum við Akureyrarbæ annars vegar og Rauða Krossinn hins vegar um meðhöndlun og flutning á textíl.

2.Áfangastaðastofa

Málsnúmer 2505013Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samningi við SSNE varðandi Áfangastaðastofu Norðurlands sem ætlað er að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi ferðaþjónustu á svæðinu. Gjald fyrir þjónustu áfangastofu mun miðast við íbúafjölda sveitarfélaga á svæðinu og er kr 500 pr íbúa eða um 1 milljón króna fyrir Fjallabyggð á þessu ári.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning um Áfangastaðastofu Norðurlands

3.Náttúruverndarnefnd SSNE

Málsnúmer 2504010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga frá byggðaráði Norðurþings um að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar.
Vísað til umsagnar
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar og álits í skipulags- og umhverfisnefnd.

4.Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2025

Málsnúmer 2504059Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð ásamt fylgigögnum fyrir aðalfund Landskerfis bókasafna hf.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Stöðufundir umhverfis- og tæknideildar

Málsnúmer 2501035Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl frá stöðufundum skipulags - og framkvæmdasviðs.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Fundarboð - ársfundur lífeyrissjóðsins Stapa

Málsnúmer 2505009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð fyrir ársfund lífeyrissjóðsins Stapa sem haldinn verður þann 13.maí n.k. að Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Rekstrarskilyrði útflutningsgreina og ársreikningar 2024

Málsnúmer 2505014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga á rekstrarskilyrðum útflutningsgreina og hlutdeild í rekstri sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Nefndasvið Alþingis - Mál til umsagnar 2025

Málsnúmer 2501003Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til umsagnar mál frá Aþingi 2025
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:00.