Samstarf um flutning á textíl.

Málsnúmer 2505004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 874. fundur - 09.05.2025

Fyrir liggja samningsdrög við Akureyrarbæ annars vegar og Rauða Krossinn hins vegar um meðhöndlun og flutning á textíl en sveitarfélögum er skylt að halda úti sérstakri söfnun á textíl. Hlutverk Rauða Krossins er að flokka og endurnýta sem mest af textíl en Akureyrarbær sér um flutning frá Akureyri.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningum við Akureyrarbæ annars vegar og Rauða Krossinn hins vegar um meðhöndlun og flutning á textíl.