Náttúruverndarnefnd SSNE

Málsnúmer 2504010

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 321. fundur - 16.04.2025

Lagður fram tölvupóstur frá byggðarráði Norðurþings um samstarf sveitarfélaga á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndar.
Vísað til bæjarráðs
Nefndin þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 874. fundur - 09.05.2025

Fyrir liggur tillaga frá byggðaráði Norðurþings um að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar.
Vísað til umsagnar
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar og álits í skipulags- og umhverfisnefnd.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 322. fundur - 14.05.2025

Fyrir liggur tillaga frá byggðaráði Norðurþings um að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar. Bæjarráð Fjallabyggðar fjallaði um málið á síðasta fundi sínum og vísaði tillögunni til umfjöllunar og álits í skipulags- og umhverfisnefnd.
Vísað til bæjarráðs
Nefndin álítur náttúrvernd mikilvæga og telur að sú nefnd sem hér er rædd geti verið landshlutanum til framdráttar. Nefndin telur einnig að eðlilegt væri að slík nefnd væri leidd undir forystu SSNE og telur því eðlilegast að beina þessari fyrirspurn um tilvistarrétt hennar til stjórnar SSNE. Það er því álit nefndarinnar að fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn SSNE ætti að bera upp erindi þetta á næsta stjórnarfundi SSNE.