Bæjarráð Fjallabyggðar

873. fundur 05. maí 2025 kl. 08:15 - 08:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Hátindur 60

Málsnúmer 2212014Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samningi um framlengingu á verkefninu Hátindur 60 út árið 2025.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að framlengja verkefnið Hátindur 60 út árið 2025 í samræmi við fyrirliggjandi drög að samningi og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun.

2.Skipulags- og framkvæmdasvið- starf verkefnisstjóra framkvæmda

Málsnúmer 2505003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að starfi verkefnastjóra framkvæmda á skipulags- og framkvæmdasviði Fjallabyggðar.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að starfi verkefnastjóra framkvæmda og felur bæjarstjóra að auglýsa starfið. Bæjarstjóra jafnframt falið að leggja fyrir bæjarráð tillögur að tilfærslum í fjárhagsáætlun í tengslum við aukið starfshlutfall á sviðinu.

3.Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að samningi um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026 en einn aðili sýndi verkefninu áhuga eftir auglýsingu.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning um rekstur knattspyrnuvalla í Fjallabyggð 2025 og 2026 með lítilsháttar breytingum í samræmi við umræður á fundinum og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun.

Fundi slitið - kl. 08:45.