Stýrihópur Heilsueflandi samfélags

36. fundur 29. september 2026 kl. 16:00 - 17:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • María Sölvadóttir fulltrúi leik- og grunnskóla
  • Jónína Kristjánsdóttir fulltrúi eldri borgara
  • Brynhildur Bjarkadóttir fulltrúi eldri borgara
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir fulltrúi ÚÍF
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri

1.Íþróttavika Evrópu 2026

Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.- 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi.

Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn óska eftir að tekið verði saman hversu vel var mætt í kynningartímana frá þeim aðilum sem buðu uppá kynningar á ýmsum íþróttum og afþreyingu.

2.Gulur september

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Áskorun vegna "guls september"
Gulur september er á enda en við tekur bleikur október sem er forvarnarmánuður m.a. tileinkaður fólki sem hefur fengið krabbamein.

En fimmtudagurinn 1. október er forvarnardagur og á heimasíðunni forvarnardagur.is má finna ýmsar upplýsingar. Þann dag verður málþing Forvarnardagsins haldið í 21. skiptið. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla. Setning dagsins er í beinu streymi.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn hvetja íbúa og fyrirtæki til að taka þátt í forvarnarstarfinu m.a. með því að skarta bleiku í hinum ýmsu myndum. Minnt er á bleika messu sem verður í Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 4. október kl. 20.
Hægt er að kaupa bleikar slaufur og hengja t.d. á staura, einnig er hægt að fá penna og slaufur í jakka m.a. í Kjörbúðunum.

3.Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til 2035

Málsnúmer 2609058Vakta málsnúmer

Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum til 2035
Lagt fram til kynningar
Skýrsludrögin lögð fram til kynningar og nefndarmenn hvattir til að kynna sér efni skýrslunnar og draga út úr henni það sem hægt er að nýta í áframhaldandi stefnumótun Fjallabyggðar í forvarnarstarfi.

4.Lýðheilsuvísar á Norðurlandi 2026

Málsnúmer 2609057Vakta málsnúmer

Lýðheilsuvísar Norðurlands 2026
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn telja mikilvægt að nýta lýðheilsuvísa við stefnumótun og forvarnarstarf sveitarfélaga.

Æskilegt væri að vísarnir væru í auknum mæli aðgengilegir og sundurgreindir eftir einstökum sveitarfélögum, enda myndi það auðvelda sveitarfélögum að greina eigin stöðu, styrkleika og áskoranir og beina aðgerðum þangað sem þörfin er mest.

5.Stýrihópur um heilsueflandi samfélag - önnur mál

Málsnúmer 2609056Vakta málsnúmer

Önnur mál
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn ræddum ýmis mál er snúa að heilsueflingu almennt, bæði líkamlegri,andlegri og félagslegri heilsu, og á næsta fundi verða lögð drög af starfsáætlun næsta árs.

Fundi slitið - kl. 17:30.