Framkvæmdir og viðhald á mannvirkjum Fjallabyggðarhafna 2018

Málsnúmer 1804121

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 96. fundur - 26.04.2018

Deildarstjóri tæknideildar fór yfir framkvæmdir og viðhald ársins 2018. Stærsta verkefnið er klæðning á Róaldsbryggju.
Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gera verðkönnun vegna verkefnisins við Róaldsbryggju.
Eftirtöldum aðilum verði gefinn kostur á að gera tilboð:
Berg ehf, L7 ehf, GJ smiðir ehf og Trésmíði ehf.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 554. fundur - 02.05.2018

Á fundi hafnarstjórnar þann 26.apríl sl. var lagt til við bæjarráð að gera verðkönnun vegna framkvæmda á Roaldsbryggju og smábátahöfn á Siglufirði.

Eftirtöldum aðilum verði gefinn kostur á að gera tilboð:

Berg ehf
L7 ehf
GJ smiðir ehf
Trésmíði ehf

Bæjarráð samþykkir að gerð verði verðkönnun vegna framkvæmdanna.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 97. fundur - 24.05.2018

Tilboð voru opnuð í verkið "Siglufjörður-Róaldsbryggja-þybbuklæðning" þriðjudaginn 22 maí. Eftirfarandi tilboð bárust:
L7 ehf 7.490.000
Berg ehf 4.415.000
Kostnaðaráætlun 7.086.000

Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að taka tilboði lægstbjóðanda.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 558. fundur - 29.05.2018

Tilboð voru opnuð í framkvæmdir við Roaldsbryggju - þybbuklæðning þann 22. maí sl.

Eftirfarandi tilboð bárust:

L7 ehf. - 7.490.000 kr.
Berg ehf. - 4.415.000 kr.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 7.086.000 kr.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 99. fundur - 22.08.2018

Þegar dýpkað var við Bæjarbryggju 2016 urðu nokkrir toppar eftir og var því ekki hægt að gefa út dýptarkort í 9 metra heldur aðeins 8,5. Þetta hefur haft þau áhrif að einhver skemmtiferðaskip hafa ekki viljað leggja að bryggjunni. Nú stendur okkur til boða að fá Jan De Nuul sem sá um dýpkunina síðast til þess aðkoma og fjarlægja þessa toppa og fá í framhaldi útgefið dýptarkort niður á 9 metra. Kostnaðarskipting vegna dýpkunar er 60% Vegagerðin og 40% Fjallabyggðarhafnir.

Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gengið verði til samninga við Jan De Nuul vegna dýpkunar við bæjarbryggju.