Hafnarstjórn Fjallabyggðar

99. fundur 22. ágúst 2018 kl. 17:00 - 17:50 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir varaformaður I lista
  • Andri Viðar Víglundsson aðalmaður, H lista
  • Guðmundur Gauti Sveinsson aðalmaður, D lista
  • Ólafur Haukur Kárason varamaður, I lista
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Aflatölur og aflagjöld 2018

Málsnúmer 1802088Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. janúar - 21. ágúst 2018 ásamt samanburði við sama tíma árið 2017.

2018 Siglufjörður 10425 tonn í 1218 löndunum.
2018 Ólafsfjörður 312 tonn í 352 löndunum.

2017 Siglufjörður 6520 tonn í 1457 löndunum.
2017 Ólafsfjörður 333 tonn í 420 löndunum.

2.Framkvæmdir og viðhald á mannvirkjum Fjallabyggðarhafna 2018

Málsnúmer 1804121Vakta málsnúmer

Þegar dýpkað var við Bæjarbryggju 2016 urðu nokkrir toppar eftir og var því ekki hægt að gefa út dýptarkort í 9 metra heldur aðeins 8,5. Þetta hefur haft þau áhrif að einhver skemmtiferðaskip hafa ekki viljað leggja að bryggjunni. Nú stendur okkur til boða að fá Jan De Nuul sem sá um dýpkunina síðast til þess aðkoma og fjarlægja þessa toppa og fá í framhaldi útgefið dýptarkort niður á 9 metra. Kostnaðarskipting vegna dýpkunar er 60% Vegagerðin og 40% Fjallabyggðarhafnir.

Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gengið verði til samninga við Jan De Nuul vegna dýpkunar við bæjarbryggju.

3.Siglufjarðar- og Ólafsfjarðarhafnir, flokkun sem iðnaðarhöfn

Málsnúmer 1808046Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Ragnari Ásmundssyni sem vinnur nú að verkefni fyrir Atvinnuþróunarfélögum Eyjafjarðar og Þingeyinga að útfæra vefsíðu.

Erindið snýr að flokkun á Siglufjarðar- og Ólafsfjarðarhöfnum hvort flokka megi þær sem iðnaðarhafnir.

Hafnarstjórn lítur erindið jákvæðum augum og vísar erindinu til Hafnarstjóra til úrvinnslu.

4.Koma skemmtiferðaskipa á Siglufjörð 2018

Málsnúmer 1711062Vakta málsnúmer

Lagðar fram tekjutölur vegna komu skemmtiferðaskipa fyrir árið 2017 og 2018.

Hafnarstjórn bendir á að auka þurfi sýnileika og kynningu á Fjallabyggðahöfnum á heimasíðu Fjallabyggðar.

5.Rekstraryfirlit - 2018

Málsnúmer 1804092Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstraryfirlit fyrir janúar til ágúst 2018.

Rekstrarniðurstöður sýna að reksturinn er í jafnvægi miðað við fjárhagsáætlun 2018.

Fundi slitið - kl. 17:50.