Hafnarstjórn Fjallabyggðar

96. fundur 26. apríl 2018 kl. 17:00 - 17:40 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson varaformaður, D lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir aðalmaður, S lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson aðalmaður, D lista
  • Þorgeir Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Aflatölur og aflagjöld 2018

Málsnúmer 1802088Vakta málsnúmer

Fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. janúar - 25. apríl 2018 ásamt samanburði við sama tíma árið 2017.

2018 Siglufjörður 3527 tonn í 278 löndunum.
2018 Ólafsfjörður 196 tonn í 171 löndunum.

2017 Siglufjörður 1990 tonn í 361 löndunum.
2017 Ólafsfjörður 219 tonn í 225 löndunum.

2.Framkvæmdir og viðhald á mannvirkjum Fjallabyggðarhafna 2018

Málsnúmer 1804121Vakta málsnúmer

Deildarstjóri tæknideildar fór yfir framkvæmdir og viðhald ársins 2018. Stærsta verkefnið er klæðning á Róaldsbryggju.
Hafnarstjórn leggur til við bæjarráð að gera verðkönnun vegna verkefnisins við Róaldsbryggju.
Eftirtöldum aðilum verði gefinn kostur á að gera tilboð:
Berg ehf, L7 ehf, GJ smiðir ehf og Trésmíði ehf.

3.Sumarleyfi hafnarvarða

Málsnúmer 1804112Vakta málsnúmer

Yfirhafnarvörður fór yfir dagsetningar á sumarleyfum hafnarvarða.

4.Sumarafleysingar hafnarvarða

Málsnúmer 1804111Vakta málsnúmer

Steinunn María Sveinsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Hafnarstjórn ákveður að ekki verði ráðið sérstaklega í afleysingar heldur leitað eftir þjónustu Betri vara á Ólafsfirði og Fiskmarkaði Siglufjarðar á álagstímum.

5.Seatrade Cruise Med í Lissabon 19.-20.september

Málsnúmer 1804109Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn hefur áður samþykkt að sækja eina ráðstefnu á ári. Fulltrúi Fjallabyggðarhafna hefur sótt eina ráðstefnu á þessu ári og því munu Fjallabyggðarhafnir ekki senda fulltrúa sinn á þessa ráðstefnu.

6.Eftirlit með móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum

Málsnúmer 1804012Vakta málsnúmer

Eftirlit Umhverfisstofnunar með móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum verður dagana 28. maí - 1. júní í Fjallabyggðarhöfnum.

7.Ný úttekt á aflahlutdeild stærstu útgerða

Málsnúmer 1803021Vakta málsnúmer

Fiskistofa hefur tekið saman skrá yfir 100 stærstu handhafa aflahlutdeilda og 50 stærstu handhafa krókaaflahlutdeilda. Sem fyrr ræður HB Grandi yfir mestum hlutdeildum, síðan koma Samherji og Síldarvinnslan. Grunnur ehf í Hafnarfirði ræður yfir mestri krókaaflamarkshlutdeild. Fiskistofa hefur eftirlit með því að yfirráð einstakra aðila yfir aflahlutdeildum fari ekki umfram þau mörk sem lög kveða á um.

Hægt er að sjá ný gögn og upplýsingar um málið á eftirfarandi vefslóð:

http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/frettir/aflahlutdeild-staerstu-utgerda-1

Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að taka saman upplýsingar um þróun aflaheimilda í Fjallabyggð síðustu tíu ár.

8.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám við Innri höfn á Siglufirði

Málsnúmer 1804080Vakta málsnúmer

Gestur Hansson sækir um fyrir hönd Top Mountaineering stöðuleyfi fyrir gám sem staðsettur yrði á grjótgarði norður-suður í innri höfn, Siglufirði.

Hafnarstjórn samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

9.Umsögn varðandi frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða

Málsnúmer 1804113Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn samþykkir umsögnina fyrir sitt leyti.

10.Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2017

Málsnúmer 1804072Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:40.