Fréttir

Sýningaropnun á Kaffi Klöru "Djúpið" Hólmfríður Vídalín og Pia Rakel opna samsýningu í dag 10. júní kl. 16:30

Hólmfríður Vídalín leirlistakona og Pia Rakel Sverrisdóttur glerlistakona opna samsýninguna "Djúpið " á Kaffi Klöru í Ólafsfirði í dag 10. júní kl. 16:30. Sýningin stendur til 27. júní nk.
Lesa meira

Frístundaakstur sumar 2022

Frá og með 7. júní tekur við frístundaakstur milli byggðarkjarnanna. Rútan fer frá skólahúsinu við Norðurgötu Siglufirði og Vallarhúsinu Ólafsfirði.
Lesa meira

Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði yfir hvítasunnuhelgina 4. og 5. júní 2022

Um Hvítasunnuhelgina verður mikið um dýrðir í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og eru allir velkomnir. Laugardaginn 4. júní kl. 14.00 opnar Níels Hafstein sýninguna Brennuvargar 2022 í Kompunni Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 - 17.00 til 19. júní.
Lesa meira

Vinnuskóli Fjallabyggðar 2022

Vinnuskóli Fjallabyggðar Vinnuskólinn er fyrir ungmenni sem nýlokið hafa 8., 9. eða 10. bekk.
Lesa meira

Sumaropnun Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar 2022

Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar auglýsa sumaropnun 2022.
Lesa meira

Tafir á opnun sundlaugar í Ólafsfirði

Vegna ófyrirséðra tafa við afhendingu efnis við endurnýjun búningsklefa í sundlaug Fjallabyggðar Ólafsfirði verður sundlaugin ekki opnuð í byrjun júní eins og ráðgert hafði verið. Stefnt er að opnun laugarinnar eins fljótt og auðið er, í síðasta lagi 20. júní. Kappkostað er að opna sundlaugina fyrr ef möguleiki er á og verður það þá auglýst sérstaklega. Sumaropnun sundlaugar Fjallabyggðar á Siglufirði hefst 7. júní. Opið verður alla virka daga kl. 06:30 – 19:00 og laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 – 18:00.
Lesa meira

216. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

216. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði 2. júní 2022 kl. 17.30.
Lesa meira

Snjóflóðavarnir Siglufirði - Stoðvirki í Hafnarfjalli 4. áfangi

Framkvæmdir eru hafnar við uppsetningu stoðvirkja grinda í Hafnarfjalli. Flug í fjallið mun hefjast í dag og standa fram á helgi. Ekki er flogið með grindur yfir byggðina, en óþægindi geta verið af hávaða vegna flugsins.
Lesa meira

215. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar

215. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar verður haldinn í Tjarnarborg, Aðalgötu 16, Ólafsfirði 25. maí 2022 kl. 17.00
Lesa meira

Íþróttamiðstöðvarnar verða lokaðar þriðjudaginn 24. maí frá kl. 12:00

Íþróttamiðstöðvarnar verða lokaðar þriðjudaginn 24. maí frá kl. 12:00 vegna námskeiðis stafsfólks.
Lesa meira