23.08.2022
Kæru íbúar Húnabyggðar
Fyrir hönd íbúa Fjallabyggðar sendum við ykkur og öðrum þeim sem eiga um sárt að binda, innilegar samúðarkveðjur vegna þess harmleiks sem átti sér stað á Blönduósi.
Hugur okkar er hjá ykkur.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar
Lesa meira
22.08.2022
Af gefnu tilefni eru ökumenn beðnir um að sýna aðgát í umferðinni nú þegar skólastarf er að hefjast á ný og einnig að virða hraðatakmarkanir í íbúðagötum bæjarins.
Lesa meira
22.08.2022
Sjálfsbjörg, sem hefur aðsetur að Lækjargötu 2 Siglufirði, tekur þátt í deginum hér og hvetur íbúa Fjallabyggðar til að hittast á Torginu Siglufirði, laugardaginn 27. ágúst kl. 13:00 og taka ganga um nærumhverfið og fylla inn í TravAble appið.
Að því loknu, kl. 14-16, býður Sjálfsbjörg upp á kaffi og vöfflur í húsnæði sínu á Siglufirði.
TravAble appið má nálgast í Applestore og GooglePlay og hægt er að fylla inn í það hvar sem er og hvenær sem er. Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að fylla inn í appið upplýsingar um aðgengi í báðum byggðarkjörnum, og víðar eftir því sem við á.
Lesa meira
19.08.2022
Ný akstursáætlun skólarútu tekur gildi mánudaginn 22. ágúst en þá hefst skólastarf Grunnskóla Fjallabyggðar.
Almennir farþegar eru velkomnir í skólarútu ef sæti eru laus en nemendur grunnskóla, menntaskóla og starfsfólk sveitarfélagsins ganga fyrir sætum, í þessari röð.
Lesa meira
15.08.2022
Nýlega voru “Áform um frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða”, birt inn á Samráðsgátt stjórnvalda og opnað fyrir umsagnir um áformin. Í þessum áformum er opnað fyrir möguleika á gjaldskyldu í öllum jarðgöngum landsins. Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar sendi inn umsögn fyrir hönd bæjarstjórnar Fjallabyggðar.
Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri hefur einnig sent inn umsögn, fyrir hönd bæjarstjórnar Fjallabyggðar, um drög að frumvarpi til laga um sýslumenn.
Lesa meira
15.08.2022
Áfram verður nemendum í 1.-4. bekk gefinn kostur á Frístund strax að loknum skólatíma kl. 13.35 – 14.35. Frístund er frístundastarf, samstarfsverkefni Fjallabyggðar, íþróttafélaga, tónlistarskólans og grunnskólans.
Lesa meira
21.07.2022
Óprúttinn aðili/ar hafa unnið skemmdaverk á tjaldsvæðum Fjallabyggðar á Siglufirði síðustu daga.
Um er að ræða krot með tússpenna sem ekki er gott að fjarlægja. Ekki er vitað hver var að verki en biðlum við til íbúa og gesta að ganga vel um bæinn.
Lesa meira
20.07.2022
Trilludagar verða á Siglufirði 23. júlí nk. Á Trilludögum finna allir eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng og í útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Skemmtileg afþreying bæði á sjó og landi fyrir börnin, hoppukastalar verða á Rauðkutúni. Tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn.
Lesa meira
19.07.2022
Bæjarskrifstofa Fjallabyggðar verður lokuð vegna sumarleyfa starfsmanna frá 25. júlí til og með 5. ágúst.
Lesa meira
18.07.2022
Nöfn umsækjenda um stöðu bæjarstjóra Fjallabyggðar.
22 sóttu um stöðu bæjarstjóra Fjallabyggðar sem auglýst var laus til umsóknar. Átta drógu umsókn sína til baka og því eru birt nöfn 14 umsækjenda. Umsækjendur eru þessir í stafrófsröð:
Lesa meira