14.03.2011
Sorphirðudagatal Fjallabyggðar hefur tekið smávægilegum breytingum. Um er að ræða breytingar á brúnu tunnunni. Hægt er að skoða
sorphirðudagatalið undir útgefnu efni, eða á upplýsingasíðu um sorphirðu
í Fjallabyggð.
Lesa meira
10.03.2011
Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýnir í tilefni af 50 ára afmæli LÓ, afmælissýninguna Leika, alltaf leika..
Lesa meira
10.03.2011
Frestur rennur út í dag 10. mars til að sækja um styrk til greiðslu fasteignarskatts.
Lesa meira
09.03.2011
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar auglýsir samkeppni um merki
sambandsins.
Lesa meira
08.03.2011
Eins og lesendur síðunnar hafa væntanlega tekið eftir þá hefur Fjallabyggð nú tekið nýja heimasíðu í gagnið.
Síðan er unnin í Moya kerfi frá Stefnu. Síðan verður yfirfarin og skoðuð næstu daga, hvort allt hafi
ekki tekist eins og til var ætlast. Allar ábendingar varðandi heimasíðuna er hægt að senda á gisli@fjallabyggd.is
Lesa meira
04.03.2011
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings verður með viðtalstíma í Ólafsfirði 8. mars kl. 13.00-14.30 á bæjarskrifstofu, 2. hæð.
Bæjarbúar sem stefna á menningarviðburði eða verkefni eru hvattir til að mæta og ræða við Ragnheiði vegna styrkumsókna til Menningarráðs Eyþings.
Lesa meira
03.03.2011
Um helgina fer um 80 manna hópur frá félagsmiðstöðinni Neon til Reykjavíkur að taka þátt í Samfésfestivali í Laugardalshöllinni. Um er að ræða risa stórt ball á föstudagskvöldinu með mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins og söngkeppni Samfés á laugardeginum. Lísa Margrét Gunnarsdóttir verður fulltrúi Neons á söngkeppninni í ár sem sýnd verður beint á skjá einum. Keppninn er kl. 13-16 laugardaginn 5. mars.
Að lokum þakka krakkarnir úr félagsmiðstöðinni fyrir frábærar viðtökur bæjarbúa og fyrirtækja í Fjallabyggð, í áheitasöfnun Neons 2011. Takk kærlega fyrir.
Lesa meira
01.03.2011
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sýnum þann 9. febrúar 2011 að auglýsa deiliskipulag fyrir svæði sem skilgreint er sem
Opið svæði tilsérstakra nota í Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008 - 2028.
Lesa meira
28.02.2011
Síðastliðinn föstudag útnefndi menningarnefnd, Örlyg Kristfinnsson Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011. Sandra Finnsdóttir formaður nefndarinnar fór yfir það ötula starf sem Örlygur hefur tekið að sér í Fjallabyggð sem safnstjóri, rithöfundur, myndlistarmaður, hönnuður, kvæðamaður og lífskúnstner. Þetta er í annað sinn sem valinn er Bæjarlistamaður Fjallabyggðar og tekur Örlygur við nafnbótinni af Bergþóri Morthens sem bar titilinn árið 2010.
Fjallabyggð óskar Örlygi innilega til hamingju með nafnbótina.
Lesa meira
25.02.2011
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2011
Lesa meira