Bæjarstjórn samþykkti á fundi sýnum þann 9. febrúar 2011 að auglýsa deiliskipulag fyrir svæði sem skilgreint er sem
Opið svæði tilsérstakra nota í Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008 - 2028.
Svæðið er skipulagt sem frístundasvæði til ýmissa nota.
Skipulagssvæðið afmarkast af þjóðvegi í suðri, affalli Ólafsfjarðarvatns,
Ósnum að austan, sjávarströndinni að norðan og fjallsrótum að vestan.
Skipulagssvæðið er um 44,5 ha. að stærð.
Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofum sveitarfélagsins, Gránugötu 24, Siglufirði og Ólafsvegi 4, Ólafsfirði, á
skrifstofutíma frá 2. mars til 13. apríl 2011. Að auki er hægt að nálgast tillögurnar hér: Yfirlitsuppdráttur og Greinargerð
Athugasemdum við skipulagstillöguna skulu berast á tæknideild sveitarfélagsins í síðasta lagi 13. apríl 2011 og skulu
þær vera skriflegar.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni.
Sigurður Valur Ásbjarnarson
Bæjarstjóri Fjallabyggðar