Umsóknarfrestur er til 10. mars 2011
Í reglum Fjallabyggðar um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka segir m.a.:
1. gr. - Sveitarstjórn Fjallabyggðar er heimilt
að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar,-
íþrótta,- æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf sbr. heimild í 2.mgr. 5.gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna
sveitarfélaga.
3. gr. - Sækja skal um styrk til greiðslu fasteignaskatts á eyðublöðum sem skulu liggja frammi á skrifstofu Fjallabyggðar og vera
aðgengileg á vefsvæði sveitarfélagsins. Með umsóknum um styrki skal fylgja:
a)
Nýjasti ársreikningur félagsins.
b) Lög viðkomandi félags þar sem fram koma
markmið þess.
c) Stutt greinargerð um starfsemi félagsins.
Að öðru leyti er vísað í reglur, á heimasíðu Fjallabyggðar.
http://www.fjallabyggd.is/static/files/Gjaldskrar/Fb_afsl_fasteignagj_2010.pdf
Umsóknum skal skilað á
bæjarskrifstofurnar í Fjallabyggð.
Fjallabyggð 25. febrúar 2011
Skrifstofu- og fjármálastjóri