Innra eftirlit velferðarþjónustu

Málsnúmer 2611016

Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 13. fundur - 12.11.2026

Fyrir liggur reglugerð um almenna tilhögun innra eftirlits þeirra þjónustuveitenda sem lúta eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Lagt fram til kynningar
Haldinn var fundur af hálfu Gæða- og eftirlitsstofnun þar sem farið var yfir reglugerðina. Á fundinum kom fram ákall til GEV um að gefa út leiðbeinandi efni og sniðmát fyrir velferðarþjónustu sveitarfélaga til að styðjast við.
Einnig komu fram athugasemdir við skamman tíma til að ljúka verkefninu þar sem áskilið er að verkefninu verði lokið fyrir 1. janúar 2027.