Ungmennaráð Fjallabyggðar

25. fundur 24. febrúar 2020 kl. 14:30 - 15:15 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Dagný Lára Heiðarsdóttir aðalmaður
  • Marlis Jóna Þórunn Karlsdóttir aðalmaður
  • Steinunn Svanhildur Heimisdóttir aðalmaður
  • Nadía Sól Huldudóttir varamaður ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Ronja Helgadóttir boðaði forföll, Nadía Sól Huldudóttir sat fundinn í hennar stað.
Hörður Ingi Kristjánsson boðaði forföll og enginn mætti í hans stað.

1.Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði

Málsnúmer 2002020Vakta málsnúmer

Ungmennaráð UMFÍ stendur í ellefta sinn fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan fer fram 1. - 3. apríl í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Yfirskrift ráðstefnunnar er Lýðræðisleg áhrif. Hvar, hvenær og hvernig hefur ungt fólk áhrif?
Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 - 25 ára.
Á viðburðinum er lögð áhersla á að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi, gefa einstaklingum verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif í sínu nær samfélagi.
Stefnt er að því að fulltrúar Ungmennaráðs Fjallabyggðar fari á ráðstefnuna.
Skráning stendur til 20. mars 2020.

2.Málþing ungmenna á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 1905061Vakta málsnúmer

Dagana 10. - 11. febrúar 2020 var haldið málþing á Húsavík undir yfirskriftinni Ungt fólk og Eyþing 2020. Þar mættu fulltrúar ungmenna aðildarsveitarfélaga Eyþings. Fulltrúar Fjallabyggðar komust ekki vegna veðurs og lokunar í Ólafsfjarðarmúla. Umfjöllunarefni málþingsins var Heimsmarkmið Sameinuðuþjóðanna en auk þess fengu ungmennin kynningu á Eyþing, fóru í sjóböðin og ýmislegt fleira var gert. Unnið var í fjórum hópum og gerðu hóparnir tillögu að næsta viðburði Ungs fólks og Eyþings. Niðurstaðan var að halda Landsmót ungmenna í SSNE sem yrði haldið á vordögum. Þangað mun Fjallabyggð senda fulltrúa sína.

Fundi slitið - kl. 15:15.