Stjórn Hornbrekku

19. fundur 07. febrúar 2020 kl. 08:15 - 09:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Konráð Karl Baldvinsson aðalmaður, I lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson aðalmaður, D lista
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður, H lista
  • Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir formaður I lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
  • Birna Sigurveig Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður Hornbrekku
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.Starfsemi Hornbrekku 2020

Málsnúmer 2001116Vakta málsnúmer

Birna gerði grein fyrir starfi Hornbrekku undanfarið og framundan. Námskeið í Þjónandi leiðsögn hófst í janúar og lýkur í maí. Námskeið Símeyjar fyrir starfsmenn Hornbrekku gengur vel og lýkur sömuleiðis í maí.

2.Samningur Hornbrekku við SÍ

Málsnúmer 2001117Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur um rekstur og þjónustu Hornbrekku til næstu tveggja ára. Gerðir voru samhljóða samningar við hvern rekstraraðila hjúkrunar- og/eða dvalarrýma en ekki rammasamningur við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samtök íslenskra sveitarfélaga eins og verið hefur.

3.Viðhaldsverkefni Hornbrekku 2020

Málsnúmer 2001118Vakta málsnúmer

Breytingum á þvottahúsi efri hæðar er lokið og endurbótum á herbergi nr. 6 er að ljúka. Á döfinni er endurnýjun fatáskápa í öll herbergi. Uppsetning á nýju bjöllukerfi hefst í febrúar. Endurnýja þarf tvö sjúkrarúm og er hjúkrunarforstjóra falið að ganga frá málinu,

Fundi slitið - kl. 09:30.