Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

212. fundur 03. maí 2017 kl. 17:00 - 19:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir formaður, D lista
  • Guðmundur J Skarphéðinsson aðalmaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Hilmar Þór Elefsen, varaformaður S-lista mætti ekki á fundinn og enginn mætti í hans stað.

1.Umsókn um byggingarétt á lóðum við Eyrarflöt

Málsnúmer 1703070Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti Konráð K. Baldvinsson til að kynna hugmyndir og áætlanir Ýmis fasteignafélags ehf. vegna umsóknar um byggarétt á lóðum við Eyrarflöt.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og Konráð mun skila inn drögum að breyttu deiliskipulag til tæknideildar.

2.Deiliskipulag malarvallarins

Málsnúmer 1704081Vakta málsnúmer

Tæknideild falið að hefja vinnu við deiliskipulag malarvallarins á Siglufirði.

3.Lóðarmál við Suðurgötu 16 Siglufirði

Málsnúmer 1702067Vakta málsnúmer

Afgreiðslu frestað
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Hvanneyrarbraut 26 Siglufirði-umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1703026Vakta málsnúmer

Synjað
Lagt fram bréf húseigenda við Túngötu 31b þar sem fyrirhuguðum byggingaráformum er mótmælt.

Umsókn um byggingarleyfi er hafnað með 3 atkvæðum, einn situr hjá.

5.Umsókn um uppsetningu á upplýsingaskilti við Hvanneyrarbraut

Málsnúmer 1704001Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn þar sem óskað er eftir uppsetningu á skilti við Hvanneyrarbraut og afleggjarann niður að Bakka, Siglufirði. Skiltið mun draga fram tenginguna á milli Mjallhvítar og Siglufjarðar, með fróðleik fyrir þá sem sækja Siglufjörð heim.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur tæknideild að fá nánari upplýsingar um útfærslu.

6.Veituhús á Hafnarbryggju - lóðarleigusamningur

Málsnúmer 1704011Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að lóðarleigusamning ásamt lóðarblaði fyrir veituhús Rarik við Bæjarbryggju.

Samþykkt.

7.Gámar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1704057Vakta málsnúmer

Umræða tekin um gámaleyfi í Fjallabyggð.

8.Sorphirða í frístundabyggð Fjallabyggðar

Málsnúmer 1704079Vakta málsnúmer

Umræða tekin um sorphirðu í frístundabyggð Fjallabyggðar.

Tæknideild falið að setja upp gáma til reynslu, fyrir utan gámasvæðin sem myndu þjóna ferðamönnum og sumarhúsaeigendum.

9.Rusl á víðavangi í Fjallabyggð

Málsnúmer 1704080Vakta málsnúmer

Umræða tekin um rusl á lóðum og á víðavangi í Fjallabyggð. Tæknideild falið að senda hvatningarbréf til lóðarhafa þar sem óviðunandi ástand er.

10.Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 - tillaga að breytingum verkefnis og matslýsing

Málsnúmer 1704012Vakta málsnúmer

Lögð fram verk- og matslýsing vegna breytinga á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021. Óskað er eftir umsögn eða ábendingum.

Nefndin gerir ekki athugasemdir við breytingarnar.

11.Umsókn um skráningu stækkunar á landeign í landi Hlíðar, Ólafsfirði

Málsnúmer 1703078Vakta málsnúmer

Landeigandi Hlíðar óskar eftir umsögn nefndarinnar vegna landaskipta á Neskotslóðinni í landi Hlíðar í Ólafsfirði.

Erindi frestað til næsta fundar.

12.Fyrirspurn vegna byggingarleyfis-Hlíð Ólafsfirði

Málsnúmer 1705006Vakta málsnúmer

Óskað eftir áliti nefndarinnar vegna fyrirhugaðs fjárhúss á landspildu lögbýlisins Hlíðar í Ólafsfirði.

Nefndin tekur jákvætt í erindið.



Undir þessum lið vék Jón Valgeir Baldursson af fundi.

Fundi slitið - kl. 19:00.