Umsókn um uppsetningu á upplýsingaskilti við Hvanneyrarbraut

Málsnúmer 1704001

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 212. fundur - 03.05.2017

Lögð fram umsókn þar sem óskað er eftir uppsetningu á skilti við Hvanneyrarbraut og afleggjarann niður að Bakka, Siglufirði. Skiltið mun draga fram tenginguna á milli Mjallhvítar og Siglufjarðar, með fróðleik fyrir þá sem sækja Siglufjörð heim.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur tæknideild að fá nánari upplýsingar um útfærslu.