Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

173. fundur 29. október 2014 kl. 17:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
  • Kristjana Rannveig Sveinsdóttir varamaður, S lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Athugasemdir vegna skipulags- og umhverfismála á Ólafsfirði

Málsnúmer 1410015Vakta málsnúmer

Björn Þór Ólafsson kom til fundar við nefndina til að ræða skipulags- og umhverfismál í Ólafsfirði. Nefndin þakkar góðar ábendingar og vísar þeim áfram til bæjarráðs vegna fjárhagsáætlunar 2015.

2.Útbreiðsla Lúpínu í Tindaöxl Ólafsfirði

Málsnúmer 1408067Vakta málsnúmer

Á 171.fundi nefndarinnar var óskað eftir því við tæknideild að hún myndi afla upplýsinga um hvernig staðið sé að því að hefta útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils.
Á 172.fundi var lögð fram til kynningar skýrsla á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landgræðslu ríkisins um útbreiðslu, varnir og nýtingu tegundanna.

Farið verður í að hefta útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils í Fjallabyggð og hefst það vorið 2015.

3.Erindi Hestamannafélagsins Gnýfara frá 31. ágúst 2014

Málsnúmer 1409022Vakta málsnúmer

Erindi frestað.

4.Umsókn um lóð undir bílastæði við Snorragötu - Siglufirði

Málsnúmer 1410039Vakta málsnúmer

Gunnar St. Ólafsson fyrir hönd Selvíkur ehf. og Hótels Sunnu, óskar eftir lóð undir bílastæði milli Snorragötu 6 og 8.

Erindi samþykkt.

5.Ósk eftir samvinnu vegna bílastæða við Snorragötu 4 - Siglufirði

Málsnúmer 1410040Vakta málsnúmer

Selvík ehf. óskar eftir samvinnu Fjallabyggðar við gerð bílastæða við Snorragötu 4.

Nefndin óskar eftir að Selvík ehf. leggi fram tillögu þeirra að útfærslu bílastæða á Snorragötu 4, fyrir næsta fund.

6.Umsókn um lóð, Skútustígur 4

Málsnúmer 1407061Vakta málsnúmer



Lagt fram til kynningar bréf Einars Ásgríms Sigurðssonar þar sem umsókn um sumarhúsarlóð við Skútustíg 4 er afturkölluð.

Lóðin Skútustígur 4 er því laus til umsóknar.

7.Rekstraryfirlit ágúst 2014

Málsnúmer 1410004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir ágúst 2014.

Niðurstaða fyrir hreinlætismál er 15,7 millj. kr. sem er 135% af áætlun tímabilsins sem var 11,6 millj. kr.

Niðurstaða fyrir skipulags- og byggingarmál er 13,7 millj. kr. sem er 72% af áætlun tímabilsins sem var 19,2 millj. kr.

Niðurstaða fyrir umferðar- og samgöngumál er 67,6 millj. kr. sem er 93% af áætlun tímabilsins sem var 72,6 millj. kr.

Niðurstaða fyrir umhverfismál er 48,7 millj. kr. sem er 107% af áætlun tímabilsins sem var 45,7 millj. kr.

Niðurstaða fyrir eignasjóð er -72,5 millj. kr. sem er 111% af áætlun tímabilsins sem var -65,2 millj. kr.

Niðurstaða fyrir þjónustumiðstöð er 16,2 millj. kr. sem er 86% af áætlun tímabilsins sem var 18,9 millj. kr.

Niðurstaða fyrir veitustofnun er -6,9 millj. kr. sem er -287% af áætlun tímabilsins sem var 2,4 millj. kr.

Fundi slitið.