Rekstraryfirlit ágúst 2014

Málsnúmer 1410004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 358. fundur - 07.10.2014

Lagðar fram upplýsingar um rekstur bæjarfélagsins fyrstu átta mánuði ársins.
Rekstrarniðurstaða tímabils er 28,6 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir, -74,8 millj. miðað við -46,2 millj.
Tekjur eru 25,3 millj. hærri en áætlun, gjöld 13,4 millj. hærri og fjárm.liðir 16,7 millj. hærri.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 10. fundur - 23.10.2014

Rekstraryfirlit fyrstu átta mánuði ársins lagt fram til kynningar. Niðurstaða fyrir menningarmál er 41,1 millj. kr. sem er 93% af áætlun tímabilsins sem var 44,1 millj. kr.
Niðurstaða fyrir atvinnu- og ferðamál er 9,9 millj. kr. sem er 89% af áætlun tímabilsins sem var 11,1 millj. kr.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 173. fundur - 29.10.2014

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir ágúst 2014.

Niðurstaða fyrir hreinlætismál er 15,7 millj. kr. sem er 135% af áætlun tímabilsins sem var 11,6 millj. kr.

Niðurstaða fyrir skipulags- og byggingarmál er 13,7 millj. kr. sem er 72% af áætlun tímabilsins sem var 19,2 millj. kr.

Niðurstaða fyrir umferðar- og samgöngumál er 67,6 millj. kr. sem er 93% af áætlun tímabilsins sem var 72,6 millj. kr.

Niðurstaða fyrir umhverfismál er 48,7 millj. kr. sem er 107% af áætlun tímabilsins sem var 45,7 millj. kr.

Niðurstaða fyrir eignasjóð er -72,5 millj. kr. sem er 111% af áætlun tímabilsins sem var -65,2 millj. kr.

Niðurstaða fyrir þjónustumiðstöð er 16,2 millj. kr. sem er 86% af áætlun tímabilsins sem var 18,9 millj. kr.

Niðurstaða fyrir veitustofnun er -6,9 millj. kr. sem er -287% af áætlun tímabilsins sem var 2,4 millj. kr.