Fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni 2026

Málsnúmer 2603001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 911. fundur - 05.03.2026

Fyrir liggur erindi frá Fjallgörðum Íslands þar sem kynnt er hugmynd að fljótandi gufubaði á Ólafsfjarðarvatni fyrir landi Brekkulands. Óskað er eftir afstöðu og umsögn Fjallabyggðar til hugmyndarinnar í samræmi við fyrirliggjandi gögn en ekki er gert ráð fyrir rennandi heitu vatni í gufubaðið heldur að það verði svokölluð þurrgufa þar sem gufan er framkölluð með hitara og vatni sem hellt er yfir heita steina.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi hugmyndir fyrir sitt leyti með fyrirvara um að óska þarf umsagna frá Umhverfisstofnun og Veiðifélagi Ólafsfjarðar.