Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

331. fundur 04. mars 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Arnar Þór Stefánsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir varam.
  • Þorgeir Bjarnason aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Pálmi Blængsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Pálmi Blængsson skipulagsfulltrúi

1.Fljótagöng - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 2509033Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 sem auglýst var frá 22.12.2025 - 09.02.2026. Einnig lagðar fram þær umsagnir sem bárust og svör við þeim.
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 31. og 32. gr.,með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar.

2.Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2509034Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi útivistarsvæðis í Hólsdal sem auglýst var frá 22.12.2025 - 09.02.2026. Einnig lagðar fram þær umsagnir sem bárust og svör við þeim.
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi vegna Fljótaganga verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. og 42. gr. með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar þeirra umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar.

3.Breyting á deilskipulagi vegna Vetrarbrautar 8-10

Málsnúmer 2411088Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi athafnasvæðis á Þormóðseyri dags. 02.03.2026 sem unnin var af Eflu verkfræðistofu. Breytingin nær til lóðarinnar Vetrarbrautar 8-10 þar sem bætt er við nýjum byggingarreit fyrir starfsemi baðhúss á suðausturhluta hennar.
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. gr. Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

4.Hönnuður - umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2602071Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi fyrir klórgeymlsu við sundhöll Siglufjarðar
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við erindið og leggur til við byggingarfulltrúa að byggingarleyfi verði veitt, að uppfylltum kröfum laga um mannvirki og byggingarreglugerð.

5.Fyrirspurn um byggingaráform

Málsnúmer 2602062Vakta málsnúmer

Fyrirspurn varðandi viðbyggingu við Brimnesveg 22.
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í fyrirspurnina. Komi til umsóknar um byggingarleyfi skal erindið grenndarkynnt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

6.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Suðurgata 85 - Flokkur 2

Málsnúmer 2602061Vakta málsnúmer

Umsókn um byggingarleyfi á Suðurgötu 85, Siglufirði
Samþykkt
Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við byggingaráformin og leggur til við byggingarfulltrúa að byggingarleyfi verði veitt, enda sé framkvæmdin í samræmi við gildandi deiliskipulag og að uppfylltum kröfum laga um mannvirki og byggingarreglugerð.

7.Tjarnargata 18 - Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2602047Vakta málsnúmer

Umsókn lóðarhafa um stofnun tvegga nýrra lóða úr lóðinni við Tjarnargötu 18.
Samþykkt
Erindi samþykkt

Fundi slitið - kl. 18:00.