Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

330. fundur 04. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:00 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Arnar Þór Stefánsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Þorgeir Bjarnason aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir varam.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri tæknisviðs

1.Breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðis á Ólafsfirði

Málsnúmer 2510044Vakta málsnúmer

Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur íþróttasvæðis á Ólafsfirði vegna fyrirhugaðrar byggingar knatthúss, þar sem tekið er tillit til innsendra athugasemda sem bárust á auglýsingatíma.

Umsagnir bárust frá tveimur aðilum, Minjastofnun og Vegagerð.
Samþykkt
Nefndin leggur til að athugasemdum verði svarað í samræmi við framlagðar tillögur. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt og sent til Skipulagsstofnunar í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Deiliskipulag - Leirutangi

Málsnúmer 2107019Vakta málsnúmer

Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðra breytinga skipulags á Leirutanga, Siglufirði.
Samþykkt
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlagða skipulagslýsingu og leggur til við bæjarstjórn að hún verði auglýst skv. 40 gr. skipulagslaga númer 123/2010.

3.Suðurgata 78 - Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2512029Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Suðurgötu 78. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

4.Erindi til nefnda

Málsnúmer 2601069Vakta málsnúmer

Beiðni íbúa um merkingu bílastæðis við Hólaveg 16.
Synjað
Erindinu hafnað. Nefndin bendir á að engin hindrun er fyrir akstursþjónustu að nýta gangstéttarkant fyrir framan Hólaveg 16, tímabundið við þjónustu skjólstæðinga.

5.Úrgangsmagn til urðunar 2025

Málsnúmer 2504026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar úrgangsmagn til urðunar á árinu 2025.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

6.Fundargerðir - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar 2022 - 2026

Málsnúmer 2304029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 17.fundar Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar.
Lagt fram til kynningar
Erindi kynnt.

Fundi slitið - kl. 18:00.