Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

322. fundur 14. maí 2025 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Arnar Þór Stefánsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Ólafur Baldursson aðalm.
  • Þorgeir Bjarnason aðalm.
  • Áslaug Inga Barðadóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Gísli Davíð Sævarsson Sviðsstjóri

1.Umsókn til skipulagsfulltrúa

Málsnúmer 2505027Vakta málsnúmer

Óskað eftir leyfi til deilliskipulagsbreytingar fyrir Gránugötu 13b
Samþykkt
Erindi samþykkt.

2.Laugarvegur 29 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2504056Vakta málsnúmer

Konráð Sigþór Vilhjálmsson og Elín Helga Hauksdóttir sækja um lóðina við Laugarveg 29 á Siglufirði.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

3.Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi

Málsnúmer 2504057Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Hlíðarvegar 33. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu sem er fylgiskjal samningsins. Lóðarmörk Hlíðarvegar 33 færast tæpum meter nær Hlíðarvegi 31 svo sú lóð minnkar sammhliða. Samþykki lóðarhafa Hlíðarvegar 31 liggur fyrir.
Samþykkt
Arnar Þór vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Niðurstaða: Erindi samþykkt.

4.Ránargata 6 - skil á lóð

Málsnúmer 1905020Vakta málsnúmer

Lagt fram samkomulag við lóðarhafa um skil á lóðinni við Norðurgötu 30 / Ránargötu 6
Samþykkt
Erindi samþykkt.

5.Náttúruverndarnefnd SSNE

Málsnúmer 2504010Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga frá byggðaráði Norðurþings um að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar. Bæjarráð Fjallabyggðar fjallaði um málið á síðasta fundi sínum og vísaði tillögunni til umfjöllunar og álits í skipulags- og umhverfisnefnd.
Vísað til bæjarráðs
Nefndin álítur náttúrvernd mikilvæga og telur að sú nefnd sem hér er rædd geti verið landshlutanum til framdráttar. Nefndin telur einnig að eðlilegt væri að slík nefnd væri leidd undir forystu SSNE og telur því eðlilegast að beina þessari fyrirspurn um tilvistarrétt hennar til stjórnar SSNE. Það er því álit nefndarinnar að fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn SSNE ætti að bera upp erindi þetta á næsta stjórnarfundi SSNE.

6.Undirbúningur nýs vegar að fyrirhuguðum Fljótagöngum

Málsnúmer 2410005Vakta málsnúmer

Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til kjarnaboranna í Hólsdal vegna undirbúnings og rannsókna fyrir Fljótagöng.
Samþykkt
Erindi samþykkt.

7.Skógar og lýðheilsa

Málsnúmer 2504062Vakta málsnúmer

Lögð fram ályktun frá aðalfundi Skógfræðingafélags Íslands sem fram fór 25.mars sl.

Lagt fram til kynningar
Nefndin þakkar erindið.

8.Ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar 2024

Málsnúmer 2505012Vakta málsnúmer

Ársskýrsla Slökkviliðs Fjallabyggðar 2024 lögð fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:00.