Notendaráð fatlaðs fólks

2. fundur 04. mars 2026 kl. 14:30 - 15:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Viðar Aðalsteinsson Aðalmaður
  • Hrafnhildur Sverrisdóttir Aðalmaður
  • Sæbjörg Ágústsdóttir formaður
Starfsmenn
  • Helga Helgadóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði: Helga Helgadóttir ráðgjafi félagsmáladeildar

1.Allir með æfing í Fjallabyggð

Málsnúmer 2602055Vakta málsnúmer

Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.

Markmið verkefnisins "Allir með" eru meðal annars að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna. Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir og öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og þrói með sér öryggi og leikni.

Allir með æfingarnar eru sérstaklega ætlaðar grunnskólabörnum með sérþarfir og áhersla lögð á jákvætt, öruggt og styðjandi umhverfi.

Allir með æfing fór fram í íþróttahúsinu í Ólafsfirði þann 21. febrúar sl. Á æfingunni buðu þjálfarara frá ÚÍF upp á badminton, blak, pokakast og fleira. Ennig var á staðnum júdóþjálfari frá KA. Góð mæting var á æfinguna, skemmtileg stemning myndaðist og þótti æfingin hepnast afar vel.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

2.Réttidagæsla fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 2602056Vakta málsnúmer

Þann 1. maí 2025 færðist réttindagæsla fyrir fatlað fólk yfir til Mannréttindastofnunar Íslands.

Réttindagæslan aðstoðar fatlað fólk við að ná fram rétti sínum þegar réttindi þess eru ekki tryggð eða þau brotin. Aðstoðin getur til dæmis verið:

Upplýsingaöflun hvernig á málum er haldið og leiðbeiningar um úrbætur

Sitja fundi með einstaklingum eða skýrslutöku fyrir lögreglu og dómstólum þegar mál eru tekin fyrir

Fylgjast með að málsmeðferð sé í samræmi við lög og tryggja að fatlað fólk njóti jafnrar stöðu sem persónur fyrir lögum

Leiðbeina og aðstoða þegar reynir á sjálfræði fólks, hæfni til að fara með eigin réttindi og skyldur (gerhæfi) og sjálfsákvörðunarrétt

Undirbúa kærur eða kvartanir fyrir fólk og nota allar áfrýjunarleiðir innan stjórnsýslunnar

Koma ábendingum til skila til hluteigandi stjórnvalda eða aðila

Útvega persónulegan talsmann

Telji fatlaður einstaklingur að á rétti hans sé brotið getur hann haft samband við réttindagæsluna. Hún veitir í kjölfarið leiðbeiningar eða aðstoð við að leita réttar síns eftir því sem við á.

https://www.throskahjalp.is/is/rettindi/islenska/myndbond-um-rettindi-fatlads-folks-a-islandi

Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

3.Erindisbréf notendaráðs fatlaðs fólks í Fjallabyggð

Málsnúmer 2601038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar nýtt erindisbréf fyrir notendaráð fatlaðs fólks í Fjallabyggð sem bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á 268. fundi sínum þann 26.02.2026.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 15:30.