Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.
Markmið verkefnisins "Allir með" eru meðal annars að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna. Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir og öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og þrói með sér öryggi og leikni.
Allir með æfingarnar eru sérstaklega ætlaðar grunnskólabörnum með sérþarfir og áhersla lögð á jákvætt, öruggt og styðjandi umhverfi.
Allir með æfing fór fram í íþróttahúsinu í Ólafsfirði þann 21. febrúar sl. Á æfingunni buðu þjálfarara frá ÚÍF upp á badminton, blak, pokakast og fleira. Ennig var á staðnum júdóþjálfari frá KA. Góð mæting var á æfinguna, skemmtileg stemning myndaðist og þótti æfingin hepnast afar vel.
Lagt fram til kynningar