Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

30. fundur 15. febrúar 2017 kl. 17:00 - 18:45 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður, S lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson áheyrnarfulltrúi, F lista
  • Lisebet Hauksdóttir varamaður, D lista
  • Róbert Grétar Gunnarsson deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Róbert Grétar Gunnarsson Deildarstjóri fræðslu, frístunda og menningarmála
Helga Jónsdóttir boðaði forföll og enginn mætti í staðinn fyrir hana. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir boðaði forföll og Lisbet Hauksdóttir varamaður kom í hennar stað. Sæbjörg Ágústsdóttir boðaði ekki forföll og enginn kom í hennar stað.

1.Ráðstefna um ferðamál

Málsnúmer 1701043Vakta málsnúmer

Lagt fram
Linda Lea Bogadóttir gerði grein fyrir undirbúningi að ráðstefnu þann 9.mars n.k.
Ákveðið hefur verið að halda ráðstefnuna í Menningarhúsinu Tjarnarborg.
Lagt er til að bjóða ferðaþjónustuaðilum bæði austan og vestan við okkur.
Markmið ráðstefnunnar er bæði að kynna svæðið og hvernig best er að standa að uppbyggingu Fjallabyggðar sem ferðamannastaðar. Hver eru sóknarfærin?

2.Norræna strandmenningarhátíðin 2018

Málsnúmer 1501100Vakta málsnúmer

Lagt fram
Róbert Grétar Gunnarsson kynnti Norrænu Strandmenningarhátíðina sem verður haldin 2018. Næstu skref varðandi þessa hátíð er fyrsti fundur undirbúningsnefndar hátíðarinnar um komandi helgi.
Lagt til að þessi hátíð verði hluti af 100 ára afmælishátíð Siglufjarðar.

3.Hátíðir í Fjallabyggð

Málsnúmer 1602031Vakta málsnúmer

Lagt fram
Almenn umræða um Síldarævintýrið.
Nefndarmenn voru sammála um að auglýsa eftir framkvæmdastjóra til að taka að sér samræmingu dagskrár yfir verslunarmannahátíðina með einblíningu á grunndagskrá tengdri Síldarævintýrinu, en að mestu verði farið í að einbeita sér að stærri markhóp og þá helst fjölskyldufólki á aldrinum 30-50 ára.
Nefndarmenn voru sammála um að alls konar íþróttaþrautir og viðburðir og keppnir muni henta vel til að kalla fólk til leiks og skapa nýja og ferska ásýnd bæjarfélagsins. Óskað er eftir upplýsingum hver fjárhagsrammi sveitarfélagsins er í kringum þennan árlega viðburð.
Einnig rætt um aðrar hátíðir sveitarfélagsins, svo sem Trilludaga og 17.júní.

Fundi slitið - kl. 18:45.