Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

45. fundur 01. ágúst 2018 kl. 17:00 - 18:15 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Ida Semey boðaði forföll og varamenn hennar einnig.

1.Arctic Coast Way

Málsnúmer 1612033Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarfulltrúi kynnti Norðurstrandarveginn eða Arctic Cost Way sem er fyrirhugaður ferðamannavegur um strandir Norðurlands. Norðurstrandarleið er spennandi nýtt verkefni í ferðaþjónustu, á vegum Markaðsstofu Norðurlands, sem á að skapa nýtt aðdráttarafl á Norðurlandi og kynna landshlutann sem einstakan áfangastað. Markmiðið er að skapa betri tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki til að selja vörur og þjónustu undir vörumerki Norðurstrandarleiðar og vera í leiðinni sýnilegri á innlendum og erlendum markaði.

2.Hátíðir í Fjallabyggð 2018. Skýrslur og uppgjör

Málsnúmer 1801022Vakta málsnúmer

Ákveðið að fresta umfjöllun um uppgjör hátíða í Fjallabyggð 2018 þar til öll uppgjör liggja fyrir. Uppgjör vegna 17. júní hátíðarhalda hefur borist en von er á ítarlegri gögnum.

3.Ferðastefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1401026Vakta málsnúmer

Fyrr á þessu ári var stofnaður stýrihópur til að klára vinnu við Ferðastefnu Fjallabyggðar. Ákveðið að formaður nefndarinnar fundi með stýrihópnum á næstunni vegna vinnunnar sem framundan er við ferðastefnuna.
Fundarmenn heimsóttu menningarhúsið Tjarnarborg þar sem umsjónarmaður sýndi þeim húsið.

Fundi slitið - kl. 18:15.