Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

44. fundur 27. júní 2018 kl. 17:00 - 18:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Stefánsson formaður, D lista
  • Ida Marguerite Semey aðalmaður, I lista
  • Jón Kort Ólafsson aðalmaður, H lista
  • Sigríður Guðmundsdóttir aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson varaformaður I lista
Starfsmenn
  • Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála

1.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2018 - 2022

Málsnúmer 1806015Vakta málsnúmer

Nefndarmenn undirrituðu drengskaparheit um þagnarskyldu með vísan í 28. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011

2.Erindisbréf nefnda 2018-2022

Málsnúmer 1806062Vakta málsnúmer

Farið var yfir erindisbréf Markaðs- og menningarnefndar. Nefndin felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að koma á framfæri tillögum að orðalagsbreytingum á erindisbréfi.

Fundir nefndarinnar verða mánaðarlega, fyrsta miðvikudag i hverjum mánuði kl. 17:00.

3.Koma skemmtiferðaskipa á Siglufjörð 2018

Málsnúmer 1711062Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Aníta Elefsen safnstjóri Síldarminjasafns Íslands en hún er tengiliður Fjallabyggðar við Cruise Iceland og Cruise Europe.

Aníta kynnti fundarmönnum áætlun yfir komur skemmtiferðaskipa til Siglufjarðar árið 2018 og hvernig móttöku þeirra er háttað.

4.Norræna strandmenningarhátíðin 2018

Málsnúmer 1501100Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Aníta Elefsen safnstjóri Síldarminjasafns Íslands en hún situr í stýrihópi Norrænu strandmenningarhátíðarinnar. Síldaminjasafn Íslands er aðili að hátíðinni ásamt Fjallabyggð og Vitafélaginu.

Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi og Aníta Elefsen fóru yfir stöðu undirbúnings fyrir Norrænu strandmenningarhátíðina sem haldin verður á Siglufirði í næstu viku. Hátíðin hefst miðvikudaginn 4. júlí kl. 17.00 með setningu og lýkur sunnudaginn 8. júlí. Hátíðarsvæðið verður við smábátahöfnina á Siglufirði. Dagskrá hátíðarinnar verður borin út í öll hús í Fjallabyggð, Skagafirði og á Dalvík í þessari viku.

5.Trilludagar 2018

Málsnúmer 1801032Vakta málsnúmer

Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi kynnti undirbúning og skipulag fyrir Trilludaga 2018 fyrir nefndarmönnum.

Trilludagar verða haldnir 28. júlí nk. í þriðja sinn.

6.Ferðastefna Fjallabyggðar

Málsnúmer 1401026Vakta málsnúmer

Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi sagði fundarmönnum frá vinnu við gerð Ferðastefnu Fjallabyggðar. Stýrihópur hefur verið stofnaður til að endurskoða og ljúka þeirri vinnu sem hafin er.

Fundi slitið - kl. 18:30.