Hafnarstjórn Fjallabyggðar

68. fundur 13. apríl 2015 kl. 17:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson aðalmaður, D lista
  • Sverrir Sveinsson áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Árni Sæmundsson varamaður, S lista
  • Gunnlaugur Oddsson aðalmaður, F lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson Deildarstjóri tæknideildar

1.Fjögurra ára samgönguáætlun 2015-2018 - Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum

Málsnúmer 1410017Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk Vegagerðar um fjármögnun á framkvæmd á hlut bæjarfélagsins við endurnýjun Hafnarbryggju og dýpkunar.

Hafnarstjórn bókar eftirfarandi:

Hafnarstjórn staðfestir að hafnarsjóður sé tilbúinn að standa við skuldbindingu sína vegna framkvæmda sem listaðar eru hér að ofan.

Samþykkt hafnarstjórnar er gerð með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Fjallabyggðar.

Handbært fé hafnarsjóðs frá rekstri á fjárfestingartímabilinu 2013-2017:

2013 43,7 millj.
2014 49,9 millj.
2015 52,5 millj. áætlun
2016 53,6 millj. áætlun
2017 58,9 millj. áætlun.

Einu skuldir hafnarsjóðs í árslok 2014 eru lífeyrisskuldbindingar að upphæð 37 millj.

Heimildir ársreikningur Hafnarsjóðs Fjallabyggðar og fjárhagsáætlun Fjallabyggðar 2015 - 2018.

2.Viðskiptaáætlun v/ endurnýjunar hafnarbryggju

Málsnúmer 1504017Vakta málsnúmer

Lögð fram viðskiptaáætlun fyrir endurnýjun Hafnarbryggju, er varðar endurnýjun þils, dýpkun á innsiglingarrennu, lagnir, plön og fyllingar.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða viðskiptaáætlun.

3.Staðsetning olíutanka fyrir smærri báta

Málsnúmer 1504018Vakta málsnúmer

Lögð fram teikning með tillögu að staðsetningu olíutanka við norðurendann á Óskarsbryggju.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða tillögu að staðsetningu fyrir olíuafgreiðslu smærri báta, sem er við norðurenda Óskarsbryggju.
Hafnarstjórn vísar erindinu til umsagnar hjá skipulags- og umhverfisnefnd og óskar eftir afgreiðslu á málinu sem fyrst.

4.Umgengni á hafnarsvæðum Fjallabyggðar

Málsnúmer 1504019Vakta málsnúmer

Rætt var um umgengni á hafnarsvæðum í Fjallabyggð.

Hafnarstjórn felur hafnarstjóra, deildarstjóra tæknideildar og yfirhafnarverði að koma með tillögu að umgengni og fyrirkomulagi gáma við hafnarsvæði Fjallabyggðar.

Fundi slitið.