Hafnarstjórn Fjallabyggðar

112. fundur 22. apríl 2020 kl. 17:00 - 17:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Andri Viðar Víglundsson aðalmaður, H lista
  • Guðmundur Gauti Sveinsson aðalmaður, D lista
  • Ægir Bergsson aðalmaður, I lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Starfsmenn
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Elías Pétursson hafnarstjóri

1.Tjón á vigtarhúsi, Siglufirði

Málsnúmer 2002011Vakta málsnúmer

Fram er lagt til kynningar minnisblað/atburðalýsing hafnarvarðar vegna tjóns á vigtarhúsi á Siglufirði. Tjón varð á þakkanti og hefur málinu verið vísað til tryggingarfélags ökutækisins sem á húsið ók.

2.Innviðir 2020 - Skýrsla átakshóps sex ráðuneyta í samráðsgátt

Málsnúmer 2004014Vakta málsnúmer

Fram er lögð til kynningar umsögn Fjallabyggðar vegna máls nr. 55/2020, uppbygging innviða í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögninni er bent á að sjóvarnir bæði á Siglufirði og Ólafsfirði stórskemmdust í óveðrinu í desember og þarf að ráðast í endurbætur á þeim strax í sumar svo afstýra megi frekara tjóni.

3.Orkuskipti í höfnum - beiðni um upplýsingar

Málsnúmer 2004023Vakta málsnúmer

Fram er lagt til kynningar erindi til aðildarhafna Hafnarsambands Íslands frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu dags. 07.04.2020. Erindið varðar fyrirspurn um orkuskipti í höfnum. Einnig er fram lagt svar hafnarstjóra dags 08.04 2020.

4.Til upplýsinga vegna COVID-19

Málsnúmer 2003007Vakta málsnúmer

Fram er lagt erindi sent fyrir hönd Landhelgisgæslu og varðar uppfærslu á leiðbeiningum fyrir hafnir og skip vegna Covid-19

5.Aflatölur fyrstu þrjá mánuði ársins

Málsnúmer 2004048Vakta málsnúmer

Fram er lögð samantekt yfirhafnarvarðar vegna landaðs afla með samanburði við fyrra ár.

2020 - Siglufjörður 3.503 tonn í 119 löndunum, Ólafsfjörður 125 tonn í 109 löndunum.
2019 - Siglufjörður 5.893 tonn í 271 löndunum, Ólafsfjörður 177 tonn í 162 löndunum.

6.Rekstraruppgjör janúar til mars

Málsnúmer 2004047Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir rekstraryfirlit hafnarsjóðs vegna fyrstu þriggja mánuði ársins og samanburð við fyrra ár. Tekjur eru 3,6% hærri en áætlun gerði ráð fyrir en mun lægri en samtímatekjur fyrra árs. Launakostnaður er 20% hærri en áætlun gerði ráð fyrir en 10% lægri en samtímalaunakostnaður fyrra árs. Rekstrargjöld alls eru 12% lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða er 3 mkr. betri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða alls er 3 mkr. betri en áætlun gerði ráð fyrir en 1 mkr lakari en samtímaniðurstaða fyrra árs.

7.Fundargerd_421_hafnasamband

Málsnúmer 2003065Vakta málsnúmer

Fundargerðir 421. fundar Hafnasambands Íslands og 22. fundar Siglingaráðs.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:30.