Rekstraruppgjör janúar til mars

Málsnúmer 2004047

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 112. fundur - 22.04.2020

Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir rekstraryfirlit hafnarsjóðs vegna fyrstu þriggja mánuði ársins og samanburð við fyrra ár. Tekjur eru 3,6% hærri en áætlun gerði ráð fyrir en mun lægri en samtímatekjur fyrra árs. Launakostnaður er 20% hærri en áætlun gerði ráð fyrir en 10% lægri en samtímalaunakostnaður fyrra árs. Rekstrargjöld alls eru 12% lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða er 3 mkr. betri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða alls er 3 mkr. betri en áætlun gerði ráð fyrir en 1 mkr lakari en samtímaniðurstaða fyrra árs.