Hafnarstjórn Fjallabyggðar

108. fundur 14. október 2019 kl. 17:00 Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Andri Viðar Víglundsson aðalmaður, H lista
  • Ægir Bergsson aðalmaður, I lista
  • Helga Helgadóttir varamaður, D lista
  • Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir varamaður, I lista
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Aflatölur 2019

Málsnúmer 1902009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. janúar - 13. október 2019 ásamt samanburði við sama tíma árið 2018. 2019 Siglufjörður 19608 tonn í 1619 löndunum. 2019 Ólafsfjörður 341 tonn í 335 löndunum. 2018 Siglufjörður 16024 tonn í 1604 löndunum. 2018 Ólafsfjörður 392 tonn í 410 löndunum.

2.Fjárhagsáætlun 2020

Málsnúmer 1910029Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir rekstur Fjallabyggðarhafna. Lagt fram til kynningar.

3.Skyndiúttekt á hafnaraðstöðu

Málsnúmer 1910016Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla eftir skyndiúttekt sem Samgöngustofa framkvæmdi á hafnaraðstöðu, Siglufirði. Hafnarstjóra er falið að koma með tillögu að svari við úttektinni.

4.Hafnafundur 2019

Málsnúmer 1909012Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri sótti hafnarþing í Þorlákshöfn 27. september síðastliðinn. Hafnarstjóri fór yfir erindi sem flutt voru á þinginu.

5.Erindi frá Vista, hafnarveður

Málsnúmer 1910028Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá verkfræðistofunni Vista. Hafnarstjóra og deildarstjóra tæknideildar er falið að koma með umsögn um erindið.

6.Ljós á baujur við Hafnarbryggju

Málsnúmer 1909062Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Ramma ehf vegna ljósa á baujur í innsiglingunni á Siglufirði. Hafnarstjóri hefur haft sambandi við siglingasvið Vegagerðarinnar og bíður eftir umsögn og tillögum frá þeim.

7.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 1910031Vakta málsnúmer

Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

8.Fundargerðir Siglingaráðs

Málsnúmer 1904065Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

9.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2019

Málsnúmer 1901025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið.