Ljós á baujur við Hafnarbryggju

Málsnúmer 1909062

Vakta málsnúmer

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 108. fundur - 14.10.2019

Lagt fram erindi frá Ramma ehf vegna ljósa á baujur í innsiglingunni á Siglufirði. Hafnarstjóri hefur haft sambandi við siglingasvið Vegagerðarinnar og bíður eftir umsögn og tillögum frá þeim.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 110. fundur - 27.11.2019

Vísað er til erindis Ramma hf frá 20.09.19 varðandi ljósabaujur í innsiglingu á Siglufirði.
Hafnarstjórn samþykkir framlagðar tillögur frá Vegagerðinni og reiknað er með að ljósabaujurnar (3 stk) verði komnar í gagnið í desember 2019. Framkvæmdin er styrkhæf.