Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

11. fundur 15. júní 2026 kl. 16:00 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ásgeir Logi Ásgeirsson formaður
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir Varamaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalm.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Erindisbréf nefnda 2026-2030

Málsnúmer 2606013Vakta málsnúmer

Fram er lagt erindisbréf framkvæmda-, hafna- og veitunefndar Fjallabyggðar og kynnt fyrir nefndarfólki.
Samþykkt
Nefndarfólk hefur kynnt sér erindisbréf nefndarinnar.

2.Drengskaparheit um þagnarskyldu 2026 - 2030

Málsnúmer 2606007Vakta málsnúmer

Eyðublað til undirritunar drengskaparheits um þagnarskyldu lagt fram til undirritunar.
Samþykkt
Mættir fulltrúar nefndarinnar undirrita drengskaparheit um þagnarskyldu.

3.Hafnarsvæðið í Fjallabyggð

Málsnúmer 2510060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun fyrri nefndar frá vettvangsferð á hafnarsvæðið í Ólafsfirði frá síðasta ári á þriðja fundi nefndarinnar.
Samþykkt
Samþykkt að boða til fundar rekstrar- og hagsmunaaðila við höfnina í Ólafsfirði og stefnt að því að fundur verði haldinn föstudaginn 26. júní.

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 482.fundi
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Framkvæmdir og viðhald 2026

Málsnúmer 2601055Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá bæjarstjóra og sviðsstjóra um framkvæmdir og viðhald á árinu 2026 í samræmi við fjárfestingaáætlun er samþykkt var í lok árs 2025.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Flotbryggjur í Ólafsfirði

Málsnúmer 2606025Vakta málsnúmer

Umræður um flotbryggjur í Ólafsfirði.
Lagt fram til kynningar
Rætt var um hafnaraðstöðu og þjónustu við höfnina í Ólafsfirði. Samþykkt að óska eftir því að forsvarsmenn FMS mæti á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir starfsemina og þjónustu.

7.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Í maímánuði var um 1.043 tonnum landað í Fjallabyggð en 960 tonnum var landað í maí 2025 og er þá búið að landa um 3.993 tonnum frá áramótum og nær öllum aflanum landað á Siglufirði. Til samanburðar var landað um 4.089 tonnum á fyrstu fimm mánuðum ársins 2025 og er því um lítilsháttar samdrátt að ræða frá fyrra ári.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu

Málsnúmer 2605032Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Innviðaráðuneyti þar sem óskað er umsagnar vegna heildarendurskoðunar á byggðakvótakerfinu. Málið er til umfjöllunar í bæjarráði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

9.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl frá þremur fundum framkvæmdasviðs.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 18:00.