Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar

10. fundur 07. maí 2026 kl. 16:00 - 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varam.
  • Ægir Bergsson aðalm.
  • Andri Viðar Víglundsson varam.
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
  • Gísli Davíð Sævarsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson hafnarstjóri

1.Björgunarskipið Sigurvin - Viðlegupláss 2026

Málsnúmer 2605007Vakta málsnúmer

Á fundinn eru mættir fulltrúar björgunarskipsins Sigurvins, Ingvar Erlingsson, Örvar Tómasson og Magnús Magnússon. Ræddar voru hugmyndir um framtíðar legupláss fyrir Sigurvin í innri höfninni og þá við flotbryggju sem er mikilvægt fyrir starfsemina.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Aðilar eru sammála um að finna verði Sigurvin framtíðar legupláss við innri höfnina þar sem ekki er hætta á að aðrir bátar leggist upp að. Fram kom sú hugmynd að leggja flotbryggjukant við vesturkant innri hafnarinnar þar sem Sigurvin gæti legið við og það væri þá öruggt viðlegupláss fyrir skipið til lengri tíma sbr. gróf afstöðumynd sem liggur fyrir. Með þessu móti myndi jafnframt skapast meira pláss til þess að setja upp fleiri "fingur" á núverandi flotbryggju og þar með betri nýtingu. Hafnarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að kanna möguleika á þessari lausn og þá leggja fram áætlaðan kostnað við uppsetningu á flotbryggju við vesturkantinn sem einungis björgunarskipið Sigurvin hefði aðgang að.

2.Reglur um viðlegupláss Fjallabyggðarhafna

Málsnúmer 2509055Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að reglum um viðlegupláss Fjallabyggðarhafna og úthlutun þeirra.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að reglum um viðlegupláss í Fjallabyggðarhöfnum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026.

Málsnúmer 2601042Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð Hafnasambandsins frá 481.fundi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

4.Virðisaukaskattur og skemmtiferðaskip

Málsnúmer 2602060Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá Cruise Iceland vegna fyrirhugaðrar gjaldtöku á náttúru - og innviðagjaldi sem hugsanlega getur haft áhrif á komu skemmtiferðaskipa.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

5.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl vegna stöðufunda 61-65 með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

6.Markaðssetning hafna 2026

Málsnúmer 2605006Vakta málsnúmer

Fyrir liggja upplýsingar frá Cruise Iceland vegna kaupstefnu Sea Trade Global í Miami
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

7.Aflatölur 2026

Málsnúmer 2602013Vakta málsnúmer

Í aprílmánuði var um 877 tonnum landað í Fjallabyggð og þá búið að landa um 2.950 tonnum frá áramótum og nær öllum aflanum landað á Siglufirði. Til samanburðar var landað um 3.085 tonnum á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2025 og er því um lítilsháttar samdrátt að ræða frá fyrra ári.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:00.