Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar

69. fundur 01. apríl 2019 kl. 16:30 - 18:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir formaður, D lista
  • Hólmar Hákon Óðinsson varaformaður I lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir aðalmaður, I lista
  • Diljá Helgadóttir aðalmaður, H lista
  • María Lillý Jónsdóttir varamaður, D lista
Starfsmenn
  • Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála
Gauti Már Rúnarsson boðaði forföll. Í hans stað sat María Lillý Jónsdóttir.

1.Opnir tímar í líkamsræktum íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar

Málsnúmer 1903043Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva.
Fræðslu- og frístundanefnd fól forstöðumanni íþróttamiðstöðva að finna hentugan tíma og leiðbeinendur og leggja fyrir fræðslu- og frístundanefnd. Þá óskaði nefndin eftir umsögn félagsþjónustunnar um með hvaða hætti væri hægt að koma til móts við eldri borgara og öryrkja með leiðsögn í líkamsræktina. Niðurstaða forstöðumanns og félagsþjónustu liggur fyrir. Stefnt er að því að bjóða eldri borgurum leiðsögn í líkamsræktar íþróttamiðstöðva eftir páska, tvo tíma í viku, í tvær vikur. Tímarnir verða auglýstir þegar nær dregur. Þá er samþykkt að fresta opnum tímum og leiðsögn fyrir aðra en eldri borgara þar til næsta haust.

2.Sumaropnun sundlauga Fjallabyggðar 2019

Málsnúmer 1903101Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva.
Forstöðumanni íþróttamiðstöðva og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála er falið að koma með tillögu á næsta fund að sumaropnun sundlauga 2019 í samræmi við umræður á fundinum.

3.Skóladagatal 2019-2020

Málsnúmer 1903079Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, Olga Gísladóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Fanney Jónsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskólans.

Skóladagatal Leikskóla Fjallabyggðar og Grunnskóla Fjallabyggðar lagt fram til kynningar. Fræðslu- og frístundanefnd gerir engar athugasemdir og samþykkir skóladagatöl fyrir sitt leyti.

4.Málefni Leikskóla Fjallabyggðar - stjórnendaráðgjöf

Málsnúmer 1711027Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla Kristjáns Magnússonar sálfræðings að stjórnendaþjálfun við Leikskóla Fjallabyggðar lokinni. Skýrslan er lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.