Félagsmálanefnd Fjallabyggðar

119. fundur 23. maí 2019 kl. 15:15 - 17:15 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir formaður I lista
  • Ingvar Ágúst Guðmundsson varaformaður, D lista
  • Díana Lind Arnarsdóttir aðalmaður, D lista
  • Friðfinnur Hauksson aðalmaður, I lista
Starfsmenn
  • Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson deildarstjóri félagsmáladeildar

1.Sameiginlegur fundur félagsmálanefndar Fjallabyggðar og félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 1902057Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar sendi félagsmálaráði Dalvíkurbyggðar erindi dags. 12. febrúar 2019 þar sem ráðinu er boðið til sameiginlegs fundar. Félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar tók erindið fyrir á fundi sínum 14. mars og þáði boðið með þökkum. Tilgangur fundarins er að ræða sameiginleg verkefni á sviði félagsþjónustu sveitarfélaganna með áherslu á málefni fatlaðs fólks. Fundinn sátu auk félagsmálanefndar Fjallabyggðar: Lilja Guðnadóttir, Felix Jósafatsson, Gunnar Eiríksson og Katrín Sif Ingvarsdóttir. Auk þess sátu fundinn Eyrún Rafnsdóttir, félagsmálastjóri og Þórhalla Karlsdóttir, þroskaþjálfi.

2.Samstarfssamningur Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um málefni fatlaðra 2016

Málsnúmer 1603096Vakta málsnúmer

Félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar, Eyrún Rafnsdóttir og deildarstjóri fjölskyldudeildar Fjallabyggðar kynntu samstarfssamning sveitarfélaganna um þjónustu við fatlað fólk. Markmið samningsins er að samþætta þjónustu við fötluð börn og fullorðna í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð, færa þjónustuna nær notendum og auðvelda þannig aðgang að henni. Framkvæmd samningsins er í höndum félagsþjónustum Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar. Fagleg samhæfing er í höndum fagteymis sem skipaður er stjórnendum og starfsmönnum félagsþjónustu sveitarfélaganna. Í samstarfssamningum er einnig fjallað um hvaða þjónustu sveitarfélögin skulu veita, fjármögnun, útgjöld og gildistími samstarfs. Þjónustuteymið er skipað af félagsmálastjórunum og ráðgjöfunum á hvoru svæði fyrir sig. Samningurinn hefur verið í gildi síðan 2016 og eru aðilar sammála um að vel hafi tekist til með framkvæmd samningsins.

3.Notendaráð fatlaðs fólks

Málsnúmer 1903001Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga þjónustuteymis fatlaðra, Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggar um sameiginlegt notendaráð fatlaðs fólks á þjónustusvæði Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar. Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga segir í 2.mgr.42.gr.að í hverju sveitarfélagi eða í sveitarfélögum sem eigi samstarf um þjónustu við fatlað fólk, skuli starfa formlegur samráðsvettvagur er nefnist samráðshópur um málefni fatlaðs fólks þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar. Í samráðshópnum skulu að lágmarki sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
Fundurinn samþykkir einróma að leggja til við bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar og bæjarstjórn Fjallabyggðar að sveitarfélögin standi sameiginlega að myndun notendaráðs fyrir fatlað fólk á þjónustusvæði sveitarfélaganna, sbr. 2.mgr.42.gr. laga nr. 40/1991. Tillaga fundarins er að hvort sveitarfélag fyrir sig skipi tvo kjörna fulltrúa í ráðið og auglýst verði eftir einstaklingum í setu í notendaráði, tveimur fulltrúum frá hvoru sveitarfélagi. Alls yrðu þá 8 einstaklingar í notendaráðinu.

4.Þjónusta við eldri borgara í Fjallabyggð

Málsnúmer 1905055Vakta málsnúmer

Deildarstjóri félagsmáladeildar Fjallabyggðar sagði frá þjónustu við eldri borgara í Fjallabyggð.

Fundi slitið - kl. 17:15.