Bæjarstjórn Fjallabyggðar

269. fundur 19. mars 2026 kl. 17:00 - 18:00 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir forseti
  • Tómas Atli Einarsson 2. varaforseti
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson 1. varaforseti
  • Sæbjörg Ágústsdóttir aðalfulltrúi
  • Þorgeir Bjarnason aðalfulltrúi
  • Arnar Þór Stefánsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 19.mars og að taka til afgreiðslu tillögu að ályktun um samgöngumál.

Samþykkt með 7 atkvæðum að taka fundargerð bæjarráðs frá 19.mars til afgreiðslu og tillögu um ályktun um samgöngumál.

1.Ársreikningur Fjallabyggðar 2025

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgir ársreikningur Fjallabyggðar fyrir árið 2025 ásamt sundurliðun.
Á fund bæjarstjórnar kom Þorsteinn G.Þorsteinsson, endurskoðandi sveitarfélagsins frá KPMG og fór hann yfir helstu niðurstöður úr ársreikningi 2025.

Til máls tók bæjarstjóri, Þórir Hákonarson.
Samþykkt
Rekstrarniðurstaða mun jákvæðari en áætlun gerði ráð fyrir og litlar skuldir

Samkvæmt framlögðum ársreikningi er rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B- hluta jákvæð um ríflega 240 milljónir króna að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, sem er talsvert betra en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir en áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að upphæð um 45 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 484 milljónir króna fyrir afskriftir og fjármagnsliði.

Vaxtaberandi skuldir sveitarfélagsins við lánastofnanir eru kr. 120.000.000 í A hluta sem er með því lægsta sem gerist á landinu. Það þýðir um það bil 60.000 krónur á hvern íbúa og hefur skuldastaða ekki breyst frá fyrra ári.

Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 248.598.000 en var um 100 milljónum lægri árið 2024 eða kr. 148.674.000 milljónir. Fjárfesting ársins nam 530 milljónum. Handbært fé frá rekstri samstæðu A- og B- hluta var 574 milljónir og hækkar á milli ára um 90 milljónir. Veltufé frá rekstri samstæðu A- og B-hluta , þ.e. það fjármagn sem m.a. hægt er að nýta til frekari fjárfestinga var 771 milljón árið 2025 en var um 348 milljónir árið 2024 og ríflega tvöfaldast því á milli áranna 2024 og 2025.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam kr. 4.918.671 samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta um kr. 4.245.511.

Rekstur sveitarfélagsins var nokkuð stöðugur á árinu. Gjöld voru umtalsvert hærri heldur en áætlun gerði ráð fyrir og skýrist það að mestu leyti af auknum útgjöldum vegna úrræða í félagsþjónustu sem greiddar eru af ríkinu í gegnum ráðuneyti og jöfnunarsjóð og skýrir þá jafnframt þær auknu tekjur sem fram koma í ársreikningi. Hafnarsjóður skilar jafnframt betri niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir og skýrist það af auknum tekjum vegna aflagjalds sem og afkomu vegna komu skemmtiferðaskipa á árinu.

Að öðru leyti var rekstur málaflokka almennt í samræmi við fjárhagsáætlun og launakostnaður í heild var umtalsvert lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir þrátt fyrir verulegar launahækkanir einstakra kjarasamninga.

Af einstökum málaflokkum eru félagsþjónusta og fræðslumál nokkuð yfir fjárhagsáætlun sem skýrist annars vegar af sérstökum aðstæðum félagsþjónustunnar sem ríkið greiðir svo fyrir og hins vegar af launahækkunum umfram áætlun í fræðslumálum.

Áfallnar lífeyrisskuldbindingar eru um 100 milljónum króna hærri heldur en gert var ráð fyrir eða um 290 milljónir og skýrist það fyrst og fremst af miklum launahækkunum en skuldbindingarnar, sem ráðast að fullu leyti af utanaðkomandi aðstæðum, reiknast til rekstrargjalda á árinu. Þrátt fyrir þessa hækkun um ríflega 200 milljónir á lífeyrisskuldbindingum frá árinu 2024 er rekstrarniðurstaða jákvæð um 240 milljónir.

Jákvæð niðurstaða ársreiknings fyrir árið 2025 styrkir enn frekar fjárhagslega stöðu Fjallabyggðar sem gefur aukna möguleika á nauðsynlegum fjárfestingum til lengri tíma litið.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðan ársreikning 2025 með 7 atkvæðum og vísar honum til seinni umræðu í bæjarstjórn.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 911. fundur - 5. mars 2026

Málsnúmer 2602016FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 912. fundur - 12. mars 2026

Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Helgi Jóhannsson vék af fundi við afgreiðslu liðar 2 í fundargerðinni.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 2 samþykkt með 7 atkvæðum.

Liður 2 samþykktur með 6 atkvæðum.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 913. fundur - 19. mars 2026

Málsnúmer 2603007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er tekin fyrir í heild sinni að undanskildum lið 3 sem er sérstakur liður á dagskrá fundarins.
Samþykkt
Við lið 5 í fundargerðinni þakkar bæjarstjórn Ásu Björk Stefánsdóttur, skólastjóra, fyrir hennar störf á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í komandi verkefnum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 3 samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Notendaráð fatlaðs fólks - 2. fundur - 4. mars 2026

Málsnúmer 2602014FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026

Málsnúmer 2602017FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3 sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Arnar Þór Stefánsson víkur af fundi við afgreiðslu á lið 3 í fundargerðinni.

Liðir 1 og 2 í fundargerðinni samþykktir með 7 atkvæðum.
Liður 3 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3, samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 6.1 2509033 Fljótagöng - breyting á aðalskipulagi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 31. og 32. gr.,með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 6.2 2509034 Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi vegna Fljótaganga verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. og 42. gr. með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar þeirra umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 6.3 2411088 Breyting á deilskipulagi vegna Vetrarbrautar 8-10
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. gr. Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Samþykkt með 6 atkvæðum.

7.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 5. mars 2026

Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tók Helgi Jóhannsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum

8.Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 34. fundur - 10. mars 2026

Málsnúmer 2602010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í tveimur liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Öldungaráð Fjallabyggðar - 10. fundur - 10. mars 2026

Málsnúmer 2602013FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum

10.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 7. fundur - 12. mars 2026

Málsnúmer 2603004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum

11.Haf- og strandsvæðaskipulag

Málsnúmer 2502038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Félags - og húsnæðismálaráðuneyti þar sem ráðuneytið óskar eftir sameiginlegri tilnefningu Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð. Óskað er eftir tilnefningu þriggja aðalfulltrúa og þriggja varafulltrúa.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að leggja til að Þórir Hákonarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, verði einn að þremur aðalfulltrúum í ráðinu.

12.Ályktun bæjarstjórnar Fjallabyggðar um samgöngumál 2026

Málsnúmer 2603039Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að ályktun bæjarstjórnar um samgöngumál.
Samþykkt
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir samhljóða eftirfarandi ályktun vegna samgöngumála:

"Í ljós þeirra aðstæðna sem skapast hafa á utanverðum Tröllaskaga síðustu daga og vikur beinir bæjarstjórn Fjallabyggðar því til innviðaráðherra og þingmanna allra að tryggja framgang fyrirliggjandi samgönguáætlunar hvað varðar jarðgangagerð frá Siglufirði í Fljót í Skagafirði, svokölluð Fljótagöng.

Íbúar Fjallabyggðar hafa búið við það undanfarna daga og vikur að fjölmörg snjóflóð hafa fallið við samgöngumannvirki, annað hvort við Ólafsfjarðarmúla eða á Siglufjarðarveg sem hefur þýtt tíðar lokanir á þessum leiðum eða óvissustig vegna snjóflóðahættu hefur verið gefið út af Veðurstofu. Ofan á það bætist að beint var til íbúa Siglufjarðar um tíma að vera ekki á ferli á hafnarsvæðinu þar sem líkur væru á snjóflóðum austan megin í Siglufirði sem gæti haft það í för með sér að hafnarsvæðið yrði fyrir flóðbylgjum sem hugsanlega gætu þá lokað fyrir hafnarsvæðið.

Þetta er gríðarlega mikilvægt öryggismál fyrir íbúa svæðisins, vegfarendur og atvinnulíf. Þó svo að leiðir séu ekki lokaðar en gefið út óvissustig þá eru vegfarendur ekki öruggir og því miður hafa á undanförnum dögum fallið snjóflóð á veginn við Ólafsfjarðarmúla þegar vegur var opinn vegfarendum en óvissustig var í gangi. Eyjafjarðarsvæðið er eitt atvinnusvæði og sækja margir íbúar á svæðinu vinnu til og frá Fjallabyggð. Síðustu daga hafa því margir ekki komist til vinnu sem ekki getur talist ásættanleg og alls ekki til framtíðar litið. Svo ekki sé minnst á aðgengi að Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir íbúa Fjallabyggðar. Mikilvægt er því samhliða framkvæmdum við Fljótagögn að nauðsynlegir fjármunir séu tryggðir til rannsókna þannig að hægt sé að ákveða legu nýrra jarðganga á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur/Eyjafjarðar og hefja frumhönnun.

Í yfirliti frá Veðurstofu má sjá að tugir snjóflóða hafa fallið á utanverðum Tröllaskaga undanfarna sólarhringa og mörg þeirra á vegi beggja vegna Fjallabyggðar, þ.e. Skagafjarðarmegin og Eyjafjarðarmegin. Íbúar sveitarfélagsins Fjallabyggðar hafa búið við mikla óvissu og öryggisleysi af þessum sökum og leggur bæjarstjórn Fjallabyggðar áherslu á að ríkisstjórn og þingmenn allir bregðist við og tryggi fyrirhugaðar framkvæmdir við Fljótagöng sem auka munu verulega öryggi, ekki aðeins við þær aðstæður sem nú hafa verið uppi heldur einnig í vatnsveðrum að vori og hausti sem lokar Siglufjarðarvegi vegna jarðsigs og skriðufalla."

Fundi slitið - kl. 18:00.