Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026

Málsnúmer 2602017F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 269. fundur - 19.03.2026

Fundargerðin er í 7 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3 sem bornir eru upp sérstaklega.
Samþykkt
Arnar Þór Stefánsson víkur af fundi við afgreiðslu á lið 3 í fundargerðinni.

Liðir 1 og 2 í fundargerðinni samþykktir með 7 atkvæðum.
Liður 3 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 3, samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .1 2509033 Fljótagöng - breyting á aðalskipulagi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 31. og 32. gr.,með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .2 2509034 Fljótagöng - breyting á deiliskipulagi
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drög að svörum við athugasemdum og gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við framlagða skipulagstillögu. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi vegna Fljótaganga verði samþykkt í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. og 42. gr. með þeim breytingum sem hafa verið gerðar í kjölfar þeirra umsagna sem bárust og tilgreindar eru í kafla 5.5. greinargerðar. Bókun fundar Samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .3 2411088 Breyting á deilskipulagi vegna Vetrarbrautar 8-10
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 331. fundur - 4. mars 2026 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, sbr. 41. gr. Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Samþykkt með 6 atkvæðum.