Málsnúmer 2512039Vakta málsnúmer
Fyrir liggur eftirfarandi tillaga að sérákvæðum í reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 en ákvæðin eru í samræmi við þær tillögur sem samþykktar voru á síðasta fiskveiðiári:
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr., c liðar 1. greinar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2024.
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðalags á tímabilinu 1. september 2024 til 31. ágúst 2025, þó að hámarki 80 þorskígildistonn á fiskiskip.
Í 6. grein reglugerðarinnar verði veitt undanþága frá löndun til vinnslu. Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: "Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðarkvóta innan sveitarfélagsins. " Önnur ákvæði sömu málsgr. breytist í samræmi. Í 6.gr., 3.málsgr, breytist og verður: „Afli sem boðinn er upp á fiskmarkaði innan sveitarfélagsins telst uppfylla skilyrði um löndun innan sveitarfélagsins samkvæmt 1.málsgr.“
Samþykkt