Bæjarstjórn Fjallabyggðar

208. fundur 15. desember 2021 kl. 17:00 - 18:30 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir forseti bæjarstjórnar, D-lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir bæjarfulltrúi, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson bæjarfulltrúi, H lista
  • Tómas Atli Einarsson bæjarfulltrúi, D lista
  • Nanna Árnadóttir bæjarfulltrúi, I lista
  • Helgi Jóhannsson bæjarfulltrúi, H lista
  • Guðrún Linda Rafnsdóttir bæjarfulltrúi, I lista
Starfsmenn
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 723. fundur - 9. desember 2021.

Málsnúmer 2111021FVakta málsnúmer

Fundargerð bæjarráðs er í 19 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 2 og 9.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Undir lið 5 og 6 tóku til máls: Helgi Jóhannsson og S. Guðrún Hauksdóttir.
  • 1.2 2106016 Ósk um breytingar á skipulagi Þormóðseyrar og hafnarsvæðis á Siglufirði.
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 723. fundur - 9. desember 2021. Bæjarráð samþykkir tillögu deildarstjóra tæknideildar og felur honum að hefja vinnu við breytingu deiliskipulags. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu bæjarráðs.
  • 1.9 2111046 Regus skrifstofusetur í Fjallabyggð
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 723. fundur - 9. desember 2021. Bæjarráð þakkar greinagóða og fróðlega yfirferð og lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið enda er að mati ráðsins um mikið framfaramál að ræða og samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar í bæjarstjórn. Bókun fundar Til máls tóku: Elías Pétursson, Helgi Jóhannsson, Nanna Árnadóttir, S. Guðrún Hauksdóttir, Tómas Einarsson, Helga Helgadóttir og Jón Valgeir Baldursson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja nánari útfærslur fyrir næsta bæjarstjórnarfund.

2.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 82. fundur - 2. desember 2021.

Málsnúmer 2111019FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum sem þarfnast ekki afgreiðslu bæjarstjórnar.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

3.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 106. fundur - 6. desember 2021.

Málsnúmer 2112001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 2 liðum sem þarfnast ekki afgreiðslu bæjarstjórnar.

Til máls tóku: S. Guðrún Hauksdóttir, Helga Helgadóttir og Elías Pétursson.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

4.Ungmennaráð Fjallabyggðar - 30. fundur - 7. desember 2021.

Málsnúmer 2112002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum sem þarfnast ekki afgreiðslu bæjarstjórnar.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

5.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember.

Málsnúmer 2112003FVakta málsnúmer

Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar er í 17 liðum.

Til afgreiðslu eru liðir 2, 3, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14 og 15.

Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
  • 5.2 2112016 Umsókn um stöðuleyfi - Vestan við Salthúsið
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.3 2106029 Umsókn um lóð - Bakkabyggð 6
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.5 2112023 Umsókn um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá - Auðnir
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.6 2111009 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Hverfisgata 34
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.7 2112006 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Aðalgata 3
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.8 2112002 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Laugarvegur 33
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.9 2112001 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Hvanneyrarbraut 62 og 64
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt með fyrirvara um samþykki húsfélaga Hvanneyrarbrautar 62 og 64. Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.10 2112010 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Lindargata 20b
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.11 2112011 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Hólavegur 15
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.12 2112019 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Laugarvegur 35
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.13 2112022 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Túngata 43
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.14 2112021 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Hvanneyrarbraut 44
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 5.15 2112020 Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Laugarvegur 5
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 278. fundur - 8. desember. Erindi samþykkt Bókun fundar Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

6.Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 20. fundur - 9. desember 2021.

Málsnúmer 2112004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 4 liðum sem þarfnast ekki afgreiðslu bæjarstjórnar.

Enginn tók til máls.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

7.Tilboð í ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikskálar Siglufirði 2022-2024

Málsnúmer 2112012Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála, dags. 13. desember 2021, er varðar opnun tilboða í ræstingu á húsnæði leikskólans Leikskála Siglufirði fyrir árin 2022-2024.

Eftirfarandi tilboð barst :
Minný ehf kr. 25.158.871.-

Útboðsskilmálar kveða á um að við mat á hagstæðasta tilboði í verkið skuli ekki aðeins horft til heildarverðs fyrir þjónustuna heldur jafnframt þess að verð fyrir reglulegar ræstingar vegi 90% í mati og að litið verði til viðskiptasögu bjóðenda og fyrri reynslu af sambærilegum störfum fyrir sveitarfélagið.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að ganga að tilboði Minný ehf. og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að ganga frá og undirrita verksamning f.h. sveitarfélagsins.

8.Tilboð í ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikhólar Ólafsfirði, 2022-2024

Málsnúmer 2112013Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála, dags. 13. desember 2021, er varðar opnun tilboða í ræstingu á húsnæði leikskólans Leikhóla á Ólafsfirði fyrir árin 2022-2024.
Tvö tilboð bárust í verkið.
Minný ehf. bauð kr. 14.582.026,- og RaBaHaMa ehf. bauð kr. 14.042.775,-.
Með vísan til útboðsskilmála, þar sem fram kemur að við mat á hagstæðasta tilboði í verkið skuli ekki aðeins horft til heildarverðs fyrir þjónustuna heldur jafnframt þess að verð fyrir reglulegar ræstingar vegi 90% í mati og að litið verði til viðskiptasögu bjóðenda og fyrri reynslu af sambærilegum störfum fyrir sveitarfélagið, ákveður bæjarstjórn að gengið verði til samninga við Minný ehf.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum að ganga að tilboði Minný ehf. og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að ganga frá og undirrita verksamning f.h. sveitarfélagsins.

9.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2018 - 2022

Málsnúmer 1806014Vakta málsnúmer

Breyting hjá H-lista :

Jón Valgeir Baldursson lagði fram eftirfarandi tillögu um breytingu á skipan H-lista í hafnarstjórn.
Aðalmaður í Hafnarstjórn verður Þorgeir Bjarnason, í stað Andra Viðars Víglundssonar, varamaður verður Jón Kort Ólafsson í stað Þorgeirs Bjarnasonar.

Tillaga Jóns Valgeirs samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóma eftirtaldar breytingar með 7 atkvæðum.

10.Fjárhagsáætlun 2022 - Seinni umræða

Málsnúmer 2109058Vakta málsnúmer

Til máls tóku: Helga Helgadóttir, Elías Pétursson og Jón Valgeir Baldursson.
Samþykkt
Síðari umræða um fjárhagsáætlun 2022.

Til máls tóku: Elías Pétursson, Helga Helgadóttir, Jón Valgeir Baldursson, Tómas Einarsson, Helgi Jóhannsson og S. Guðrún Hauksdóttir.

Helga Helgadóttir forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarstjórnar:

Í fjárhagsáætlun Fjallabyggðar fyrir árið 2022 er líkt og áður leitast við að bæta hag barnafjölskyldna og efla starfsemi sem snýr að börnum, ungmennum og eldri borgurum. Frístundastyrkir til barna fæddra 2004 - 2018 verða hækkaðir, sveitarfélagið bætir í styrk til UÍF vegna barna- og unglingastarfs og í leik- og grunnskóla verður fjármagn áfram sett í þróunarstarf. Unnið verður að því að efla sveitarfélagið sem aldursvænt samfélag m.a. með því að vinna að verkefni sem snýr að því að auka fjölbreytni í þjónustu við aldraða. Líkt og áður verður unnið að Heilsueflandi samfélagi og í anda þess verður áfram gjaldfrjálst í sund og rækt fyrir eldri borgara og öryrkja. Einnig verður áfram staðið að öflugri uppbyggingu innviða samfélagsins sem og viðhaldi eigna.
Almennt munu gjaldskrár hækka um 2,4% sem er nokkru minna en nýjasta þjóðhagsspá gerir ráð fyrir, í henni er gert ráð fyrir 3,3% hækkun verðlags á komandi ári.

Eftirfarandi eru helstu niðurstöður áætlunar:

Áætlaður rekstrarhagnaður bæjarsjóðs fyrir árið 2022 er 48 millj.kr.
Rekstrarafkoma samstæðu, fyrir afskriftir og fjármagnsliði, er áætluð jákvæð um 263,3 millj.kr.
Útsvarsprósenta er 14.48% og álagningarprósenta fasteignagjalda er óbreytt á milli ára.
Skatttekjur ársins 2022 eru áætlaðar 1.542 millj.kr., en útkomuspá ársins 2021 er 1.415 millj.kr.
Heildartekjur 2022 verða 3.432 millj.kr., en eru áætlaðar 3.205 millj.kr. í útgönguspá 2021.
Gjöld ársins 2022 eru áætluð 3.167 millj.kr., en eru 2.961 millj.kr. fyrir árið 2021.
Heildareignir sveitarfélagsins eru áætlaðar 6.122 millj.kr. og eigið fé er 3.985 millj.kr. eða 65% eiginfjárhlutfall.
Skuldaviðmið bæjarsjóðs er áætlað 32,5% fyrir 2022.
Vaxtaberandi skuldir eru 300 millj.kr., en voru 326 millj.kr. árið 2021.
Veltufé frá rekstri er áætlað 372 millj.kr., sem eru 10,8% af rekstrartekjum.

Á komandi ári er áætlað að fjárfestingar nemi 617 millj.kr. og verða þær fjármagnaðar með handbæru fé.

Í framkvæmdaáætlun komandi árs bera eftirfarandi verkefni hæst:

Íþróttamiðstöðin á Siglufirði - viðbygging, bætt aðgengi fyrir fatlaða og nýir búningsklefar.
Nýtt húsnæði fyrir félagsmiðstöðina NEON.
Íþróttamiðstöð Ólafsfirði, endurnýjun á búningsaðstöðu.
Nýtt aðstöðuhús á tjaldsvæðið í Ólafsfirði.
Umhverfisúrbætur á svæði vestan Óskarsbryggju á Siglufirði.
Bætt umferðaröryggi og ásýnd Aðalgötu í Ólafsfirði.
Gatnagerð og malbikun nýrra gatna á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Áframhald úrbóta á frárennsliskerfi beggja byggðarkjarna.
Áframhald endurnýjunar götulýsingar, LED-væðing.
Endurnýjun gangstétta og gerð nýrra göngustíga.

Breytingar á gjaldaliðum fasteignagjalda verða með eftirfarandi hætti:
Fasteignaskattur fyrir íbúðarhúsnæði A-flokkur verður óbreyttur í 0,48.
Gjalddagar fasteignagjalda verða áfram tíu, febrúar til nóvember.
Afsláttur á fasteignaskatti fyrir eldri borgara og öryrkja verður óbreyttur 70.000 kr.

Einnig verða tekjuviðmið vegna afsláttar á fasteignaskatti fyrir eldri borgara og öryrkja hækkuð um verðlagsþróun og verða sem hér segir:

Tekjumörk eru sem hér segir:
Flokkur - Einstaklingar - Afsláttur
1. 0 - 3.380.000 - 100%
2. 3.380.001 - 4.000.000 - 75%
3. 4.000.001 - 4.640.000 - 50%
4. 4.640.001 - 5.275.000 - 25%
5. 5.275.001 - - 0%

Flokkur - Hjón/Sambýlisfólk - Afsláttur
1. 0 - 5.120.000 - 100%
2. 5.120.001 - 5.940.000 - 75%
3. 5.940.001 - 6.560.000 - 50%
4. 6.560.001 - 7.170.000 - 25%
5. 7.170.001 - - 0%

Að lokum vill forseti, fyrir hönd bæjarstjórnar, koma á framfæri þökkum til bæjarstjóra og starfsmanna bæjarfélagsins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og ánægjulegt samstarf í krefjandi árferði og óskar íbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


Bæjarstjóri fór yfir helstu niðurstöður áætlunar og leiðréttingar sem gerðar hafa verið á milli umræðna, að því loknu lagði bæjarstjóri fram eftirfarandi bókun:

Þegar sá sem hér stendur lagði fram bókun af sama tilefni í fyrra þá var reiknað með því að faraldur sá sem þá herjaði á heiminn myndi láta undan síga mánuðina á eftir, svo varð ekki. Enn erum við að glíma við samkomutakmarkanir og aðrar afleiðingar pestarinnar sem hafa áhrif á rekstur sveitarfélagsins þó svo að áhrifin séu um sumt minni en spár gerðu ráð fyrir. Eigi að síður hefur árið verið nokkuð krefjandi og líkur á að hið næsta verði það einnig, horfandi til þess þá er það fagnaðarefni hve staða sveitarfélagsins er sterk, skuldir litlar og innviðir öflugir. Fjárhagsáætlun sú sem hér er til umræðu ber öll merki varkárni og yfirvegunar þeirra er að hafa komið, hið sama á við um þriggja ára áætlun sveitarfélagsins. Á sama tíma ber áætlunin, og þá kannski sérstaklega metnaðarfull framkvæmdaáætlun, vitni um styrkleika sveitarfélagsins og þann kraft sem í því býr. Kraftur samfélagsins hér í Fjallabyggð, sterkir innviðir og öflugt atvinnulíf veita mér fullvissu um að við getum horft björtum augum til framtíðar og að komandi ár verði sveitarfélaginu farsælt.

Að lokum vil ég þakka öllu starfsfólki Fjallabyggðar fyrir óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins og bæjarstjórn allri fyrir traust og samstarf á árinu sem nú fer að ljúka.


Jón Valgeir Baldursson hvað sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun f.h. H-listans.

Hér liggur fyrir bæjarstjórn að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2022. H-listinn hefur komið að gerð áætlunarinnar á tveimur vinnufundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og í nefndum. Ánægjulegt er að sjá að fjárhagsstaða Fjallabyggðar er mjög sterk og hægt að fara í framkvæmdir fyrir rúmar 600 milljónir og viðhaldsverkefni fyrir rúmar 100 milljónir án þess að fara þurfi í lántökur.
Við lögðum fram okkar áherslur fyrir meirihlutann sem að hluta rataði inn í lokaniðurstöðuna á framkvæmdaáætlun. Þó voru nokkur verkefni sem ekki fengu brautargengi nú og þar má helst nefna áframhaldandi vinnu við nýtt tjaldsvæði á Leirutanga, endurbætur á Ólafsvegi 4 og framtíðarnýtingu, ráðningu á umhverfisfulltrúa (náttúru- og umhverfisfræðingi), Skriðustígur á Siglufirði (Heiðarvegur) og skoðun á framtíðarhúsnæði fyrir Golfklúbb Fjallabyggðar sem jafnframt gæti nýst allt árið um kring. H - listinn leggur mikla áherslu á að þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á næsta ári komi sem fyrst til framkvæmda eða boðin út svo koma megi í veg fyrir að framkvæmdir falli niður eða færist milli ára.

Að lokum vill H - listinn þakka öllum þeim sem komu að gerð fjárhagsáætlunarinnar fyrir þeirra vinnu. Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár.


Fjárhagsáætlun 2022 og þriggja ára áætlun borin undir atkvæði.

Framlögð áætlun samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.



Fundi slitið - kl. 18:30.