Bæjarráð Fjallabyggðar

531. fundur 24. nóvember 2017 kl. 12:00 - 13:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Styrkumsóknir 2018 - Menningarmál

Málsnúmer 1709029Vakta málsnúmer

Á 38. fundi markaðs- og menningarnefndar 23. nóvember 2017 var farið yfir styrkumsóknir til menningarmála og vísaði nefndin tillögu að styrkveitingu til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að úthlutun styrkja til menningarmála og vísar henni til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.

2.Styrkumsóknir 2017 - Fasteignaskattur félagasamtaka

Málsnúmer 1709039Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir um styrk á móti fasteignaskatti félagasamtaka 2018.
Niðurstaðan er innan áætlaðra framlaga á fjárhagsáætlun 2018.

Bæjarráð samþykkir að taka málið upp eftir að búið verður að leggja á fasteignagjöld með formlegum hætti í febrúar 2018.

3.Styrkumsóknir 2018 - Ýmis mál

Málsnúmer 1709031Vakta málsnúmer

Farið yfir styrkumsóknir.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að úthlutun styrkja til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.

4.Styrkumsóknir 2018 - Frístundamál

Málsnúmer 1709030Vakta málsnúmer

Á 47. fundi fræðslu- og frístundanefndar 20. nóvember 2017 var farið yfir styrkumsóknir til frístundamála og vísaði nefndin tillögu að styrkveitingu til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að úthlutun styrkja til frístundamála með áorðnum breytingum og vísar henni til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.

5.Erindum vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2018

Málsnúmer 1702002Vakta málsnúmer

Tekin til afgreiðslu óafgreidd erindi sem bæjarráð hafði vísað til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar 2018.

1. Hvati - Nóri - Stund.

Tekið var til skoðunar að nýta vefumsjónarkerfið til að halda utan um ráðstöfun frístundastyrkja og nýtingu á íþróttamannvirkjum.

Bæjarráð samþykkir að nýta ekki vefumsjónakerfið.

2. Flugklasinn Air66N.

Beiðni um áframhaldandi aðkomu Fjallabyggðar að verkefninu árin 2018 og 2019.

Bæjarráð samþykkir beiðnina.

3. Aðstöðuhús við Brimnes

Erindi frá Helga Jóhannssyni þar sem óskað er eftir því að komið verði upp aðstöðuhúsi fyrir brimbrettafólk í Ólafsfirði. Áætlaður kostnaður er um kr. 5.000.000.
Bæjarráð hafnar erindinu.

4. Frístundastarf á sumrin fyrir 3.- 7. bekk.

Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir kostnaði í fjárhagsáætlun við kofabyggð sumarið 2018.

5. Álfhóll - hringsjá.

Erindi frá Viktoríu Særúnu Gestsdóttur þar sem óskað er eftir því að aðgengi að hringsjánni á Álfhól, Siglufirði, verði bætt. Áætlaður kostnaður er um 6 til 7 milljónir króna.

Bæjarráð samþykkir að hafna erindinu.

6. Ágangur búfjár í landi Brimnes í Ólafsfirði.

Erindi frá Sigurjóni Magnússyni vegna ágangs búfjár í landi Brimnes.

Gert er ráð fyrir kostnaði við girðingarvinnu við bæjarmörkin í Ólafsfirði til að takmarka ágang búfjárs í þéttbýli.

7. Örnefnafélagið Snókur - heimasíða

Erindi frá Örnefnafélaginu Snók um að heimasíðan snokur.is verði vistuð undir vefsíðu Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir erindið.

6.Jólaaðstoð

Málsnúmer 1711060Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um jólaaðstoð, dagsett 17. nóvember, frá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi Kirkjunnar, Hjálpræðishernum á Akureyri og Rauða krossinum við Eyjafjörð.

Þar sem félagsmáladeild bæjarins er með jólaaðstoð fyrir sína skjólstæðinga hafnar bæjarráð beiðninni.

Fundi slitið - kl. 13:30.