Bæjarráð Fjallabyggðar

483. fundur 17. janúar 2017 kl. 08:00 - 09:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir aðalmaður, B lista
  • Hilmar Þór Elefsen varamaður, S lista
Starfsmenn
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Launayfirlit tímabils 2016

Málsnúmer 1602012Vakta málsnúmer

Lagt fram mánaðarlegt launayfirlit fyrir desember 2016.

Niðurstaðan fyrir heildina er 1.106,2 m.kr. sem er 97,6% af áætlun tímabilsins sem var 1.133,6 m.kr.
Sumar deildir eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 22,7 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um um 50,1 m.kr. t.d. tónskóli vegna breytinga í Tónskólanum á Tröllaskaga og óráðstafaðri fjárveitingu vegna langtímaveikinda til stofnana.
Nettóniðurstaða er 27,4 m.kr. undir áætlun tímabilsins.

2.Netföng og hugbúnaðarleiga fyrir bæjarfulltrúa

Málsnúmer 1701049Vakta málsnúmer

Tekin til umfjöllunar netföng og hugbúnaðarleiga á vegum Fjallabyggðar fyrir bæjarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir að stofnuð verði netföng fyrir aðal- og varabæjarfulltrúa Fjallabyggðar með áskrift að viðeigandi hugbúnaðarleigu.
Áætlaður árlegur kostnaður er um kr. 195 þúsund sem færist af fjárhagslið bæjarráðs.

3.Rætur bs. málefni fatlaðs fólks - Aðalfundarboð

Málsnúmer 1701038Vakta málsnúmer

Í tilkynningu frá stjórn Róta, dagsettri 10. janúar 2017, er boðað til aðalfundar Róta bs. á Sauðárkróki, miðvikudaginn 25. janúar 2017 kl. 10:00.
Stjórn Róta gerir tillögu til aðalfundar um að fela stjórn byggðasamlagsins ásamt endurskoðanda Kristjáni Jónassyni að ganga frá uppgjöri Róta sem hefur hætt starfsemi og að stjórninni verði jafnframt falið að slíta félaginu að uppgjöri loknu.

Sjö fulltrúar Fjallabyggðar eiga rétt til setu á aðalfundinum.

4.Skákdagur Íslands, 26. janúar 2017

Málsnúmer 1701044Vakta málsnúmer

Hinn 26. janúar nk. verður Skákdagur Íslands haldinn um land allt. Skákdagurinn er haldinn á fæðingardegi Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga.
Að Skákdeginum standa Skáksamband Íslands, Skákakademían, Skákskólinn og taflfélögin í landinu, í samvinnu við félög, einstaklinga o.fl. Kjörorð dagsins eru einkunnarorð skákhreyfingarinnar: Gens Una Sumus - Við erum ein fjölskylda. Með þeim er undirstrikað að allir geta teflt, óháð kyni, aldri eða líkamsburðum.

Það er von Skáksambands Íslands að sem flest sveitarfélög taki þátt í Skákdegi Íslands og heiðri með því meistara Friðrik Ólafsson og stuðli jafnframt að enn frekari útbreiðslu þjóðaríþróttarinnar meðal ungra sem eldri.
Jafnframt býður Skáksamband Íslands að skipuleggja skákviðburð í Fjallabyggð sé eftir því leitað.

Lagt fram til kynningar.

5.Ósk um styrk - Félag heyrnarlausra

Málsnúmer 1701031Vakta málsnúmer

Í erindi Félags heyrnarlausra, dagsett 6. janúar 2017 er óskað eftir stuðningi vegna verkefna félagsins á árinu 2017 með kaupum á auglýsingu í blað félagsins.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

6.Áætlun vegna dekkjakurls

Málsnúmer 1701046Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áætlun Umhverfis- og auðlindaráðherra um að kurluðu dekkjagúmmíi verði skipt út fyrir hættuminni efni á leik- og íþróttavöllum, ásamt tillögu og skilagrein starfshóps sem vann að henni.

Á fjárhagsáætlun Fjallabyggðar 2017 er gert ráð fyrir að dekkjagúmmíi verði skipt út fyrir hættuminna efni á íþróttavöllum.

Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og frístundanefndar og deildarstjóra tæknideildar.

7.Launaþróun tónlistarkennara og staða kjaraviðræðna

Málsnúmer 1612002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá stjórn Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, dagsett 9. janúar 2017, til sveitarstjórnarmanna.

Einnig athugasemdir KÍ, dagsettar 7. janúar 2017, við yfirlýsingu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga um stöðuna í kjaraviðræðum.

8.Fundargerðir stjórnar Eyþings 2017

Málsnúmer 1701008Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 290. fundar stjórnar Eyþings, 6. janúar 2017.

9.Fundargerðir stjórnar Róta bs. - 2017

Málsnúmer 1701033Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 28. fundar stjórnar Róta bs. málefni fatlaðs fólks á vestanverðu Norðurlandi, frá 11. janúar 2017.

10.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð Fræðslu- og frístundanefnd frá 9. janúar s.l.

Fundi slitið - kl. 09:00.