Netföng og hugbúnaðarleiga fyrir bæjarfulltrúa

Málsnúmer 1701049

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 483. fundur - 17.01.2017

Tekin til umfjöllunar netföng og hugbúnaðarleiga á vegum Fjallabyggðar fyrir bæjarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir að stofnuð verði netföng fyrir aðal- og varabæjarfulltrúa Fjallabyggðar með áskrift að viðeigandi hugbúnaðarleigu.
Áætlaður árlegur kostnaður er um kr. 195 þúsund sem færist af fjárhagslið bæjarráðs.